Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Qupperneq 76

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Qupperneq 76
74 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ aukin sókn Evrópuþjóða vestur um haf. Verðfallið á íslenzkri skreið nam um 26% og jafnt og þetta gerðist hækkaði verð innfluttrar vöru um 42% á árunum 1783-87. Petta leiddi til heildartaps á Konungsverzluninni síðustu 5 árin og verzlunin hætti 1787 og var gefin frjáls við alla þegna Danakonungs. Húkkortuútgerð Konungsverzl- unarinnar hafði reynst gróðavænleg og það var ekki útgerðin heldur við- skiptakjörin, lækkað útflutningsverð en hækkað innflutningsverð, sem að framan segir að leiddi til taprekstrar Konungsverzlunar. Það eru engar skýrslur til, sem sýna tap á útgerðinni heldur verzlun- inni í heild. Það sem fræðimenn hafa fundið í sögu útgerðarinnar er ekki annað að sjá en hún hafi verið gróða- fyrirtæki. Af reynslunni af húkkortu- og jagtaútgerð Konungsverzlunarinnar hefði mátt ætla að íslenzkir landeig- endur og embættismenn reyndu að efna tii þessarar útgerðar, en það varð ekki. Þar réði mestu sem áður er rakið, að bændastéttin snerist gegn henni og ráðamenn landsins töldu slíka stórútgerð geta raskað hefðbundnu þjóðskipulagi, sveitabú- skapur gengi saman, veldi landeig- enda liði undir lok og íslenzk útgerð- ar- og kaupmannastétt yrði valda- stéttin og þessu myndi fylgja spillt þjóðlíf og aukin tök Dana á þjóðinni. Forstjóri Konungsverzlunar sagði að erfitt hafi verið að fá Islendinga til að stunda veiðar á húkkortunum og jögtum og hafi það verið orsök þess að sú útgerð lagðist af, ásamt því að almenn andstaða hafi verið í landinu gegn öllum nýjungum. Þegar borin eru saman kjör og við- urværi skipshafna á húkkortum við það sem þurrabúðarmenn og vinnu- fólk í sveitum bjó við, er það stór- undarlegt, ef rétt er, að ekki hefðu fengist sjómenn á skipin, ef þeir liefðu verið frjálsir að því að ráða sig á þau. Forstjórinn hefur trúlega mis- reiknað dæmið þarna að því er laut að sjómönnunum. Sú hefur ekki get- að verið raunin að vertíðarsjómenn, hafi ekki viljað nýta sér að sækja sjó- inn á stærri skipum en árabátum, miðað við hversu kjörin og viðurvær- ið var miklu betra á húkkortunum en menn áttu að venjast við aðra sjó- róðra eða sveitavinnu. Þjóðfélags- hættirnir hafa verið þröskuldurinn, sem fyrr segir. I rauninni var engin atvinnusjó- mannastétt til i landinu. Þeir, sem sjómennsku stunduðu skiptust í þrjá hópa. Vermennirnir voru vinnu- menn í sveitinni, sem bændur sendu í verið á vetrarvertíð og kölluðu þá síðan heim til sveitaverkanna. Þessir vinnumenn voru ekki frjáls- ir, heldur urðu að hlýta lögskipuðu vinnuhjúahelsi, eða kaupa sér rétt til lausamennsku og það var dýrt. í ann- an stað voru það kotbændur sem stunduðu sjóinn í heimræði á smá- fleytum mest 2ja mannaförum og eins mannsförum. Þessir áttu ekki heimangengt á sumrum, þá þurftu þeir að heyja túnskika sína, fyrir rolluskjáturnar og kannski eina kúna; ekki dugði þeim að forsóma að byrgja sig upp til vetrarins. Þriðji hópurinn voru þurrabúðarmenn. Þeir voru um aldirnar allt framá 19du öld vergangsmenn, einskonar af- gangsmenn úr sveitunum. Auðvitað hafa verið innanum í þessum hópi ágætir menn til sjósóknar, en al- mennt var þetta í fyrstu hinn mesti eymdarlýður, vannærður og illa haldinn í allan máta, þar sem þetta fólk hafði engar landnytjar og hafði ekki ráð á fleytu til að veiða sér í soðið. Það hefur ekki verið margt um dugandi sjómenn í þessum hópi til að manna stór skip, jagtirnar og húk- korturnar og uppfylla þær kröfur, sem gerðar voru til manna um færa- drátt. Það hefur trúlega gilt hið sama á þessum tíma líkt og síðar á íslenzku skútunum að sótzt hefur verið eftir miklum færamönnum. Þessar þrjár orsakir, nauðsyn kotbóndans að sinna búskap sínum á sumrin ófrelsi vinnumanna og manndómsleysi vesl- inganna við sjávarsíðuna í þennan mund hafa valdið því að erfitt var að manna útileguskip á sumrum, þar sem landeigendur, sem réðu fyrir öfl- ugustu sjómönnunum, snérust gegn þessari útgerð af mikilli hörku. Kon- ungsskipin voru aðallega mönnuð mönnum frá Slésvík og Holstein, en á vetrarvertíð hafa þó slæðst allmarg- ir íslendingar á jagtirnar, samanber sóknalýsingu úr Garðasókn 1780. Skorturinn hefur orðið, þegar bændur kölluðu vinnumenn sína heim að vori, og mannaskorturinn á konungsútgerðinni verið á sumrin. Kaupið á húkkortunum var marg- falt við það, sem íslendingar áttu að venjast, eða 4-6 mörk á viku auk fæðis. I marki voru 16 skildingar og vikukaup þá 64-96 skildingar. 5 mánaða kaup auk fæðis þannig lægst rúmir 13 rd. en hæst 20 ríkisdalir. Sjálfsagt hefur kaupið verið metið eftir dugnaði manna við fiskdráttinn. Heilsársvinnumannskaup í sveit var fæði og húsnæði (reiknað á 21 rd. 61 sk.) og kaup ífríðu (peningum eða kvikfé) 11 rd. 45 sk. og þar átti að dragast frá mysa, skæðaskinn og sængurföt. Lægsta kaup í 5 mánuði á húkkort- unum hefur þannig verið töluvert meira en tvöfalt hærra en heilsárs- kaup í sveit og hæsta kaup fjórfalt hærra, þegar miðað er við tímalengd, 5 mánuðum móti 12 mánuðum. Ekki gat það hafa fælt íslendinga frá því að ráða sig á húkkorturnar eða jagtirnar dönsku, að þeir höfðu miklu betra fæði þar en í landi. Að vísu geymdist brauð illa líkt og varð á okkar skútum síðar. En Danirnir höfðu hveiti til að baka gott brauð til hátíðabrigða og nóg smjör og flesk og hollenzkan ost, bankabygg nóg og baunir til grautargerðar, lambaket, ýmiskonar krydd, og birgðir góðar af öli 28 tunnur á skip og nokkur kvartil af bæði kornbrennivíni og frönsku brennivíni. Þá höfðu þeir og eitthvað af sælgæti. Þetta var nokkuð annað en matarræðið í landi á sama tíma. Fæði fólks við sjóinn var rúgmjöls- vatnsgrautur, mysa útá í stað mjólk- ur, sem ævinlega var skortur á í þurrabúðarlífinu, hádegismatur var barinn harðfiskur og hertir þorsk- hausar og þrátt smjör eða bræðingur viðbitið og soðningin til kvöldverð- ar, fiskur með smjöri ef hann var sig- inn. Sýrublanda var aðaldrykkurinn. Það var ýmist um það að sjómenn fengu sér eitthvað í svanginn áður en þeir reru, en hitt var ekki síður al-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.