Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 83

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 83
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 81 framá fyrri hluta 18.du aldar var orð- in fisklaus árið 1900 (útflutningur saltfisks fallinn niður í 10,5 tonn) ára- bátar í hrönnum stóðu óhreyfðir á kambi, aðeins einn sexæringur sagð- ur í sókn í Garðahverfi 1898 og 1899 aðeins tvö þilskip fyrir landi í Hafn- arfirði. íbúar í Hafnarfirði (svæðið Skerseyri-Hvaleyri) höfðu verið orðnir um 500 1890, en voru um 300 árið 1900. Byggðir höfðu eyðst af sjómönn- um á allri strandlengjunni frá Mels- höfða að Stapa. Strandamennirnir gengu yfir Hafnarfjörð, en Garð- hverfingar framhjá Hafnarfirði, inní Reykjavík til að manna reykvízku kútterana, því að Reykvíkingar urðu að manna þá aðkomumönnum sunn- an frá sjó, austan yfir fjall og vestan af fjörðum. Það var gömul hugmynd þeirra sem sáu framtíð Hafnarfjarðar fyrir sér á fyrri hluta 19.du aldar, að hann yrði fiskhöfn Reykjavíkur og þar með aðalfiskútflutningshöfnin, og það hefði getað orðið svo, ef fyrstu kútterarnir hefðu verið keyptir til Hafnarfjarðar en ekki Reykjavíkur, og til þess að svo yrði hefði þurft álíka áræðinn kaupmann í Firðinum og Geir var í Reykjavík. Þó er ekki víst, hvernig Tryggvi bankastjóri Landsbankans hefði litið á mál Hafn- firðings, en það var Landsbankinn, sem fjármagnaði kútterakaupin. Geir var orðinn mikill bógur í Reykjavík og gott með honum og Tryggva, sem var áhugamaður um útgerð í Reykjavík. Enn var svo hraunið, hinn gamli örlagavaldur Hafnarfjarðar á sínum stað og girti staðinn af sem fyrr, nema það var orðið á döfinni að ryðja veg í hraun- ið. Það var alveg rétt, sem Þórður Jónasson sýslumaður hafði sagt 1836, að Hafnarfjörður var tilvalin fisk- höfn og fiskútflutningsstaður, ekki sízt meðan árabátaútgerð var aðal- útgerð við Faxaflóa sunnanverðan. Meðan engar voru bryggjurnar fyrir skip að leggjast að, var hafnar- aðstaðan miklu betri í Hafnarfirði en Reykjavík og Hafnfirðingar og ná- grannarnir, Vatnsleysustrandar- menn bjuggu betur að heimamönn- um vönum þilskipum en Reykvíking- ar. Jagtaútgerð hafði aldrei fallið niður á Vatnsleysuströnd frá því í byrjun aldarinnar. Jón Sighvatsson í Njarðvík, Jón Daníelsson í Vogum, Árni Magnússon í Hólakoti og Egill í Minni-Vogum, áttu allir þilskip allt frá 1818, og þessi skip höfðu aðstöðu í Hafnarfirði, annarsstaðar var ekki aðstaða fyrir þau, og svo voru alla 19du öldina danskar jagtir í sókn frá Hafnarfirði og íslendingar mönnuðu þær að hluta. Á þessum stöðum í og við Hafnarfjörð hefur því verið miklu meira af vönum þilskipamönn- um en í Reykjavík ásamt betri höfn. En þetta gekk nú svo fyrir sig að kútterarnir héldu áfram að flykkjast til Reykjavíkur og byggðir að eyðast af sjómönnum syðra. En Hafnarfjörður var ekki öllum heillum horfinn og rothögg er ekki alltaf dauðahögg, fremur hitt oftast að menn ranki við sér og rísi aftur á fætur. Jarlarnir Meðan þessar ófarir Hafnfirðinga og nærsveita voru að ganga yfir, var svo um þá tvo menn, sem urðu for- yztumenn í viðreisn staðarins, að annar þeirra var enn í sjómennsk- unni, skipstjóri á kútter Himalaya, en hinn útvegsbóndi og formaður úti í Hlíð í Garðahverfi. Þeir urðu jarlar í Friðinum, þessir tveir, um langan aldur, höfðu þar mikinn atvinnu- rekstur og verzlun, voru áhrifamenn í bæjarmálum og báðir alþingis- menn. Ágúst Flygenring kemur til sög- unnar í Firðinum sem skipstjóri. Hann kom til Hafnarfjarðar 1888 til að taka við skipstjórn á litlum kútter, Svend, sem séra Þórarinn átti og var með hann í 8 ár. Þá fer Ágúst til Noregs að kaupa stærra skip fyrir Þórarinn og keypti þá kútterinn Himalaya 1892, og var skipstjóri á því skipi til ársins 1900, að hann hætti skipstjórn og hóf útgerð og verzlun. Einar Þorgilsson varð afturámóti fyrstur manna til að bregðast við í verzlunarmálinu, þegar verzlanirn- ar, Knudtzonaverzlun og Linnets- verzlun voru að hætta rekstri. Einar stofnaði þá 1895 Pöntunar- félag í Firðinum og veitti því forstöðu í tíu ár, en sjálfur byrjaði hann að verzla á Óseyri, sem hann hafði keypt árið 1900. Árið 1897 varð Einar hreppstjóri Garðahrepps og þar með Hafnfirðinga og gekkst þá fyrir stofnun útgerðarfélags, þilskipafé- lags Garðhverfinga, til kaupa á kútt- er, svo að segja má að Einar brigði hart við, þegar hann sá hvað var að gerast í Reykjavík. Kútterinn hét Garðar og var 71 tonn. Hann var í útgerð 1898 og fisk- aði vel. Árið 1899 voru einu þilskipin fyrir landi í Hafnarfirði, Himalaya og Garðar og fiskuðu ágætlega, Hima- laya 29794 fiska en Garðar 37000 fiska. Tveimur mönnum fleira var á Garðari eða 20 menn, en 18 á Hima- laya. Einar seldi kútterinn Garðar þetta ár og þilskipafélag Garðhverfinga var lagt niður en stofnað annað, Ut- gerðarfélagið við Hafnarfjörð, og það keypti kútterinn Surprise, 70 tonn, árið 1900 og síðan annan kútter minni, Litlu-Rósu 54 tonn, árið eftir og leigði þriðja kútterinn, Róbert 85 tonn, sem Einar keypti hlut í síðar. Þannig var Einar kominn í gang með mikla kútteraútgerð strax 1901 og jafnframt þessu var Einar þá kominn með mikla fiskverkun og fiskkaup og verzlun á Óseyri. Það gekk hratt fyrir Ágústi líka. Hann hafði byrjað sína verzlun árið 1900 í vörugeymsluhúsi útí Akur- gerði (Klifið) og fljótlega reisti hann verzlunarhús og jók rekstur sinn ört, of ört. Árið 1908 átti hann orðið fjóra kúttera og gufuskipið Leslie, sem hann hóf síldveiðar á frá Hafnarfirði, en þetta ár 1908 seldi hann fyrirtæki sitt Copeland & Berrie, þá kominn í fjárþröng, en var þar áfram meðeig- andi og framkvæmdarstjóri og þessi drift hélt áfram. Síðar keypti Flyg- enring fyrirtæki sitt aftur. En nú víkur sögunni til þess að lyft var undir Hafnarfjörð úr þeirri lægð, sem hann var kominn í árið 1900, úr óvæntri átt. Vestan af Bíldudal kom maður með 5 kúttera (urðu 6) og sá maður kom á eigin gufuskipi til Fjarðarins. Þetta var Pétur J. Thorsteinsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.