Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 92

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 92
90 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ hann við og svo hefur verið í munni fólks „hlað hins forna býlis, Akur- gerðis,“ þegar hann ræðir um „Briemspláss." „Á leið í Klifið „Þótt plássin séu hér með öll heim- sótt, telur maðurinn sig ekki enn kominn á „hreppsendann“, þar eð hann á eftir að koma við á Klifinu, vestasta verzlunarstað kauptúnsins, eins og þá var. Vegalengdin var ekki mikil, 1-2 hundruð metrar, en nokk- uð á brekku að sækja. Leiðin lá í vestur, eftir mjóum götuslóða, einu götunni gegnum kauptúnið. Ekkert hús á vinstri hönd, aðeins allmyndar- legt fiskþurrkunarsvæði, sem oft var nefnt Nýja bólverk, og náði að rótum hins forna Jaktakletts, sem talið var að drægi nafn af, að þar lét Bjarni riddari setja upp að minnsta kosti hinar smærri jaktir sínar, og gamalt fólk vildi segja, að þar hafi Bjarni smíðað og látið smíða eitthvað af sín- um fiskiskipum. Til hægri handar fer maðurinn fram hjá vestasta vöru- geymsluhúsi hinna gömlu verzlana þar á staðnum, og mun þá hafa verið með elztu húsum í Vesturfirðinum, mikið hús, allt af sterku timbri gert, háreist með tvöföldu þaki af þykkum borðum. Hús þetta var árlega bikað að utan með koltjöru, og voru nokk- ur hús þannig byggð og við haldið í Hafnarfirði á þeim tíma. Hér umrætt hús bar nafnið „Flensborgin" og var keypt frá gömlu Flensborgarverzlun- inni, þegar sú verzlun hætti störfum, um árið 1875. Hús þetta hefur að sjálfsögðu verið rifið, flutt sjóleiðina yfir höfnina og sett upp aftur í Akur- gerði í sama formi sem áður var. Upp með Flensborginni að vestan lá gata, sem gengin var til örfárra bæja, sem voru þar uppi í hrauninu. Næstur var lóðsbærinn. Þar bjuggu Jón lóðs og kona hans, Margrét, og synir þeirra þrír: Gísli, Sigurður og Guðmundur, hann dó ungur maður. Allir báru þeir bræður lóðsnafnið, þótt enginn gegndi lóðsembætti nema Gísli, sem mun hafa tekið við því að föður þeirra bræðra látnum og gegndi því til ársins 1920, að hann sagði af sér hafnsögumannsstarfinu. Einnig gegndi Gísli vitavarðarstarfi í Hafn- arfirði um 30 ára skeið. Þessi störf sem önnur, er hann vann, þar á með- al mjög lengi fiskimatsstörf, leysti Gísli af hendi af mikilli alúð og sam- vizkusemi, og var heiðraður fyrir störf sín af hafnarnefnd Hafnarfjarð- ar. Áður en maðurinn lagði upp í Klif- ið, lá leið hans skammt frá Grútar- gjótunni, er var vestan Flensborgar- innar. í Grútargjótunni voru á hlóðum tveir miklir járnpottar, auk stórra trékera, er í var losuð lifur, sem skút- ur komu með í tunnum úr hverri veiðiferð. Þarna loguðu eldar næst- um dag og nótt allt vorið og sumarið og bræddu lifrina, sem oftast var orð- in að grút. Síðast, þegar búið var að ná aðallýsinu, sem jafnótt var látið í hreinar eikartunnur, var grúturinn steinbræddur, og var það verð- minnsta lýsið, sem þannig fékkst. Steinbræðsla þurfti langa suðu. Reynt var að fleyta sem mest af hrá- lýsi, þ.e. sjálfrunnu, úr kerunum, áður en farið var að bræða. Hrálýsi var verðmætasta lýsið. Heldur þótti þetta óþrifalegt starf, en hollt og heilsusamlegt. Eitt er þó staðreynd, að allra manna voru þeir hraustastir og urðu allra karla elztir, sem þetta höfðu jafnvel að ævistarfi meir en hálft árið. í Klifinu Og svo er maðurinn kominn upp á Klifið. Þar byrjaði fyrstur að verzla Hafnfirðingur, Jón Bjarnason, árið 1886, og gerði fram undir aldamót. Eftir það fluttist Jón til Reykjavíkur og gerðist þá verzlunarstjóri við verzlunina Edinborg þar. Jón var tal- inn góður fiðluspilari og kenndi þá list allmörgum, bæði í Hafnarfirði og í Reykjavík. Jón varð bráðkvaddur á Skóla- vörðuholti, þar sem hann ásamt fjölda annarra söfnuðust saman til að horfa á hinn stórkostlega bruna, sem varð í Hafnarfirði 1906, og enginn vissi þá stundina, hve víðtækur sá bruni gæti orðið, þar eð eldurinn var búinn að ná fótfestu í kolabirgðum, sem skiptu þúsundum smálesta af mjög sterkum herskipakolum, sem dönsku varðskipin Heimdallur og Hekla áttu þarna í tveimur stórum húsum, svo og hundruð smálesta úti á hinu forna Zimsensplássi. Þessum ógnareldsvoða skal ekki lýst nánar hér, en vísað til Reykjavíkurblað- anna, ef einhver vill kynnast þessum atburði nánar. Aðeins skal þess get- ið, að ástæða þess, að stórbruni þessi varð þó ekki enn ógnarlegri, var lognið, sem hélzt næstu dægur, svo og það, að tvö íveruhús, sem næst stóðu austan við stórt, gamalt vöru- geymsluhús, fullt af herskipakolum, voru rifin. Við niðurrif nefndra húsa myndaðist allstórt autt svæði. Við að horfa á það ógnarlega, kolsvarta ský, sem þá grúfði yfir Hafnarfirði, dó Jón kaupmaður Bjarnason, sá gamli, góði Hafnfirð- ingur. Enginn veit, hverjar hafa verið síðustu hugsanir þessa aldurs- hnigna, þreytta manns. Hann vissi, að þar voru að verða eldinum að bráð bernsku- og manndómsstöðvar hans, þar sem hann hafði efalaust lifað sín fegurstu ár. Þarna voru hans ljúfustu minningar þessa lífs að brenna. Þetta hefur hans þreytta hjarta ekki þolað. Ágúst Flygering verzlaði síðar, eða skömmu eftir aldamótin 1900, í hinni gömlu búð Jóns Bjarnasonar og reisti síðan mikinn húsakost í Klif- inu niður við götuna, verzlunar- og vörugeymsluhús og hlóð bólverk til varnar sjógangi á húsin og bryggju byggði hann einnig þarna.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.