Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1925, Side 68

Eimreiðin - 01.04.1925, Side 68
EIMREIÐiN Ferð um Miðsvíþjóð. Sumarið 1924 tók ég þátt í námsskeiði, sem Norræna fe' lagið hélt í Stokkhólmi, og varð mér þar ljóst, hve lítið Is" lendingar þekkja Svía, þennan stóra bróður okkar Norður- landabúa. Landið er svo stórt, að er ég hafði ekið rúmlega 1200 km- norður í Svíþjóð, sagði kunningi minn, að gaman væri fyi"ir mig, ef ég kæmist »eitthvað norður í Svíþjóð«! Þá var eg nákvæmlega í miðju landinu, álíka norðarlega á hnettinum os 1 Reykjavík. Þjóðin er 60 sinnum fjölmennari en Islendingar, og SerJr því stærðin ein alt þjóðlíf margbreytilegra. Atvinnuvegirnir eru fjölbreyttir eins og í heilli heimsálfu. Syðst er hver blettur ræktaður eins og í Danmörku, svo enginn getur hreyft s>9> nema að gefa öðrum olnbogaskot. Nyrzt eru takmarkalausar heiðar, þar sem hirðingjar hafast við í tjöldum. Djúpt niðri 1 jörðunni er brotinn málmur og hátt til fjalla högginn skógur- Auðæfin eru hér meiri og misskiftari og menningin því klofn* ari en annarsstaðar á Norðurlöndum. Stokkhólmur — þessi fagra eyjaborg — vekur einnig löngun til að kynnast þjóðinni, sem gjörbreytt hefur öllum lifnaðar- háttum, án þess að týna sinni fornu menningu — og landmu. sem gefið hefur takmarkalaus auðæfi. Fyrsti áfanginn var til Uppsala, hinnar gömlu mentaborgar- Þar sá ég landa frægan mjög, enda var hann 600 ára garnall- Það var Edduhandrit, sem Sturlungar höfðu átt, en ]ón RuS" mann náð í handa Svíum. Voru þeir mjög hreyknir af þvl’ enda færðist hátíðasvipur yfir andlit bókavarðarins, Dr. Ugg*a’ er hann opnaði járnhurðina inn til handritaherbergisins. I voru eiginhandarbréf allra Svíakonunga, þar voru biblíu- °S Edduhandrit, þar voru páfabréf og bónorðsbréf, þar var meira að segja hryggbrotsbréf frá Elísabetu Engladrotningu til EiríÞs 14., mjög vinsamlegt og fylgdi málverk af henni með. Engmn veit, hvort það jók harma hans eða sefaði. Hitt er víst, a^ hann sendi um hæl mann til að biðja Maríu Stuart.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.