Eimreiðin - 01.04.1933, Qupperneq 26
138
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐIN
út á við og atvinnuleysi og kreppu inn. á við. Þýzka lýð-
veldið var aðallega verk jafnaðarmannanna og að nokkru
leyti miðflokksins þýzka. En prússneski einveldisandinn var
hvergi nærri kæfður. Hitler telur lýðveldið hafa með öllu
brugðist vonum manna. Gengishrun marksins, atvinnuleysið,
kreppan, alt þetta dundi yfir hið unga lýðveldi. Og það var
handhægt að kenna fyrirkomulaginu um alt saman. Miljónirnar
snerust gegn stjórninni, lýðveldinu og sósíal-demokrötunum og
þá ýmist yfir til kommúnistanna eða nazistanna. Hinir síðar-
nefndu hafa orðið ofan á, en framtíðin á eftir að leiða í ljós,
hve fastir þeir verða í sessi.
Ofsóknir þær, sem geisað hafa í Þýzkalandi gegn gyðing-
um undanfarið, eru ekki aðeins pólitískt heldur og líffræði-
legt fyrirbrigði. Ofsóknir slíkar sem þessar hafa
ofsöknir! ntt s^r ^ður. s‘?ur Hitlersmanna
hefur gefið þeim nýjan byr. Hitler er einn full-
trúi þess boðskapar, að leggja beri stund á mannrækt í víð-
tækari skilningi en nú er gert. Hefur þessi mannræktarkenn-
ing gengið út í þær öfgar, að það að vera af öðrum kyn-
stofni en hinum ariska á að vera blettur á viðkomandi mönn-
um. Svo langt hefur þessi kynstofnsdýrkun gengið, að hún
hefur verið talin réttlæta ofsóknir á hendur öðrum kynstofn-
um og þá einkum gyðingum, sem eru taldir óhreinir alt að
því eins og stéttleysingjarnir í Indlandi eða Samverjarnir í
Gyðingalandi á dögum Krists. En svo kemur fleira til greina
í ofsóknunum gegn gyðingum í Þýzkalandi. Gyðingar voru
þar í mörgum æðstu og ábyrgðarmestu stöðum, þeir ráða
afarmiklu í banka- og viðskiftamálum, Karl Marx var gyð-
ingur, og gyðingar voru framarlega í stjórnarbyltingunni í
Rússlandi og myndun ráðstjórnarríkisins. Margir kommúnistar
í Þýzkalandi voru af gyðingaættum. Það fer tvennum sögum
um það, hve hinar nýafstöðnu gyðingaofsóknir í Þýzkalandi
hafi verið víðtækar, en þær hafa átt sér stað og sennilega
gert Þjóðverjum meira tjón en nokkuð annað, sem fram-
kvæmt hefur verið þar í landi á síðustu árum. Gyðingar eru
áhrifamenn og dreifðir um allan heim. Mótmælafundir gegn
meðferðinni á gyðingum í Þýzkalandi hafa verið haldnir víðs-
vegar utan Þýzkalands að undirlagi voldugra gyðinga, og þeir
gengist fyrir viðskiftalegri einangrun Þýzkalands, sem að vísu
hefur ekki tekist til fulls, en þó valdið Þjóðverjum miklu
tjóni. í Bandaríkjunum eru 4 miljónir gyðinga. í New-Vork
hafa 288 gyðinga-félög stofnað bandalag til þess að berjast
fyrir útilokun á þýzkum vörum af amerískum markaði og af-
námi allra þvingunarlaga, sem þýzka stjórnin hefur sett gegn