Eimreiðin - 01.04.1933, Qupperneq 78
190
HREINDÝRAVEIÐAR
EIMREIÐIN
og nokkuð slaðbundin, nema þegar að þeim sverfur í harð-
indum. Þó fara þau vítt yfir, en munu þó jafnan leita á gaml-
ar stöðvar aftur. Ef hreindýrum fjölgaði aftur og yrðu jafn
algeng og þau voru hér á fyrri hluta 19. aldar, gæti það
orðið til mikilla hagsbóta fyrir fjölda manna, því kjöt og skinn
dýranna er mikils virði, en kostnaður við veiðina þyrfti að
jafnaði ekki að vera mikill.
Nú skal að nokkru reynt að lýsa hreindýraveiðum eins og
þær voru stundaðar hér í sýslu. Annars er erfitt að fá góðar
og nákvæmar frásagnir um veiðarnar, því nú hittast varla
nokkrir menn, sem hafa tekið virkan þátt í þeim, og verður
því að nokkru að byggja á munnmælum. Þó lifa enn ein-
stöku menn, sem stunduðu hreindýraveiðar á seinasta þriðj-
ungi aldarinnar, eða frá 1870 — 1900. Aðallega mátti skifta
Þingeyjarsýslu í þrjú veiðisvæði: 1. Heiðarnar upp af lág-
lendi Þistilfjarðar og Axarfjarðar, vestur að ]ökulsá á Fjöll-
um, 2. Reykjaheiði og Mývatnsöræfi og 3. Vaðlaheiði ásamt
smádölum þeim, sem fram ganga af Fnjóskadal. Voru þá
ekki hreindýraveiðarnar stundaðar nema í þeim sveitum, sem
lágu að beztu veiðisvæðunum. Þó kom það fyrir, ekki sízt í
hörðum vetrum, að hreindýr komu niður í fleiri sveitir en
þær, sem lágu næst heiðunum. Voru þau þá drepin miskunnar-
laust og fórust stundum í ám og öðrum torfærum.
Eins og gefur að skilja voru veiðarnar aðallega stundaðar
af Þingeyingum sjálfum. En þó kom það fyrir að þær voru
iðkaðar af öðrum, jafnvel erlendum mönnum. Þannig dvaldi
hér í sýslunni um skeið enskur maður, Lock að nafni, og
var almennt kallaður hreindýra-Lock. Mun það hafa verið
gert að nefna hann því nafni til aðgreiningar frá öðrum
manni með sama nafni, sem hér dvaldi við brennisteinstekju,
og var kallaður brennisteins-Lock. Hreindýra-Lock þessi stund-
aði hreindýraveiðar hér um tíma og drap mikið af þeim.
Mun hann fyrstur manna hafa notað rifla til að skjóta
með. En eftir það fengu nokkrir menn sér rifla, og þóttu
þeir miklu betri en gömlu framhlæðurnar, sem fyrst voru
notaðar. Meira mun Lock hafa stundað veiðarnar sér til
gamans en til fjárgróða.
Aðferðirnar við hreindýraveiðarnar voru aðallega með tvennu