Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1933, Síða 126

Eimreiðin - 01.04.1933, Síða 126
238 RITSJÁ EIMREIDIN margvíslegan og ágætan fatnað úr skinnunum, ef vér kynnum með þau að fara. Á öðrum stað er gefin fyrirsögn um að álúnera skinn, gera þau hentug í Ioðföt o. fl. Það er nauðsynlegt fyrir fólk að kunna þetta, og margt af öllu þessu er hverju orði sannara, en þó hygg ég að það sé ekki allskostar hyggilegt að hugsa svo mjög um hvað þjóðlegt sé og innlent, þegar verið er að ræða um Iífsnauðsynjar: húsnæði, föt og fæði. Þar á að meta mest það, sem hentugast er og borgar sig bezt, það sem er samkepnisfært, þegar á alt er Iitið. Annað mál er það, að meðan heimsverzlunin liggur í þeim lamasessi eins og nú gerist, þá er það dýr- mætt að geta bjargast sem mest af eigin ramleik. — Sama gildir um aðra ágæta grein eflir ritstj. um íslenzkar ætijurtir. Þar mun flest talið af íslenzkum jurtum, sem íslendingar hafa Iagt sér til munns. Eftir er að vita, hvað af öllu þessu þolir samkepni við annan mat. Fjallagrösin er ein af þýðingarmestu ætijurtunum, en það þykist ég viss um, að gamli grasagrauturinn verði ekki vakinn upp aftur, nema út úr neyð. Qrösin lögðust niður, bæði af því að það borgar sig tæpast að afla þeirra, nema kaupgjald sé afarlágt, og vegna þess, að maturinn var alt annað en ljúf- fengur. Qrösin þurfa einhverja nýja matreiðslu, ef þau eiga að falla fólki í geð. Það þyrfti að velja það úr íslenzku ætijurtunum, sem er áreiðan- lega samkepnisfært, og kenna matreiðslu þess í skólunum. Ollu öðru á hreinlega að sleppa. — Eina af beztu greinunum skrifar þó karl- maður, Bjarni Sigurðsson frá Vattarnesi. Hann segir frá gamalli hús- móður sinni, frú Margrétu Sigurðardóttur frá Hallormsstað, konu séra Jóns Jónssonar frá Stafafelli. Hin einfalda og sanna frásögn hans er svo snildarleg, að söguskáld vor mættu öfunda hann. Hann lýsir ekki eingöngu þessari ágætu konu svo vel, að manni hlýnar um hjartaræturnar, heldur verður alt Ijóslifandi, sem nærri henni kemur: maður hennar, heimilið, lífið þar, hugsunarhátturinn og höfundurinn sjálfur, svo úr þessu verður ágætt brot úr menningarsögu þessa tíma. Lýsing hans á því, hvernig gekk að koma upp vermireitnum á Stafafelli 1888 og hversu frúnni fórst við Iúsugan mann á Stafafelli eru ágæt dæmi um frásagnarlist höf- undarins og djúpan skilning á því, sem hann segir frá. Og flest af fólk- inu, sem hann segir frá, er gott fólk og gjörólíkt þeim skríl, sem lýst er í sumum nýju skáldsögunum, líklega eftir útlendum fyrirmyndum. — Eg held að B. S. ætti ekki að grafa pund sift í jörðu. Hann gæti eflaust sagt frá fleiru en frú Margrétu, og trúað gæti ég því, að hann gaeti skrifað skáldsögur, sem væru prýði fyrir bókmentir vorar. G. H. EGILS SAGA SKALLA-GRÍMSSONAR. Sigurður Nordal gaf út. Hið íslenzka fornritafélag, Reykjavík MCMXXXIII. — Með bók þessari er hafin útgáfa allra fornrita vorra, sem Hið íslenzka fornritafélag, stofn- að 14. júní 1928, hefur áformað að vinna að. Menn höföu vænst þess, að útgáfan byrjaði fyr en reynd hefur á orðið, því ætlunin var að fyrsta ritið kæmi út árið 1930. Þetta hefur samt dregist þangað til nú, og enn- fremur er orðin nokkur breyting á áætlun um útgáfuröð frá því sem
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.