Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1933, Page 64

Eimreiðin - 01.07.1933, Page 64
-288 KAFLAR ÚR SAN MICHELE eimreiðin Vor. Enn þá einu sinni er vorið komið. Loftið er þrungið af vori. Ginestran stendur í þlóma, brumið á myrtusviðnum er að springa út, vínviðurinn tekinn að skjóta frjóöngum, alt er þakið blómum. Rósir og kaprífólíur vefjast upp eftir stofnum sýprustrjánna og súlum laufskálans. Anemónur, krókusar, vilt- ar hýasintur, fjólur, orkidur, cyclamen spretta upp úr ilmandi grasinu. Klasar af Campanula gracilis og djúpbláar Lithosperm- «m-breiður, bláar eins og Blái hellirinn, blasa við uppi 'l sjálfu berginu. Eðlurnar elta hver aðra innan um bergflétt- urnar. Skjaldbökurnar vappa fram og aftur og syngja af gleði. Ef til vill veiztu ekki, að skjaldbökur geta sungið. Á mon- goosnum er enn meiri ókyrð en áður. Litla Mínervu-uglan veifar vængjunum eins og hún hafi í huga að skreppa í heim- sókn til vinar síns á Rómavöllum. Stóri Maremma-hundurinn, Barbarossa, hefur hlaupið eigin erinda og sést hvergi, og gamli Tappíó minn sýnist ekki ólíkur því eins og hann vildi gjarnan létta sér upp i ferð norður í Lappland, þó að hann sé orðinn lasburða. Billy reikar fram og aftur undir fíkju- trénu sínu, með glampa í augunum og í alt búinn, eins og ungur borgarbúi í æfintýraleit. Gíovannína á langar samræður við sólbrendan elskhuga sinn undir garðsveggnum. Það er alt í lagi, þau ætla að giftast að San-Antónío-hátíðinni liðinni. Fjallið helga fyrir ofan San Michele er alþakið fugli á heim- leið til maka sinna og unga. 0, hvað mér þykir vænt um að fuglinn fær að hvíla þar í friði! í gær fann ég lítinn veslings lævirkja, sem var svo örmagna eftir ferðina löngu yfir hafið, að hann reyndi alls ekki að forða sér. Hann sat grafkyr í lófa mínum, eins og hann skildi að ég væri vinur hans, ef til vill var ég landi hans líka. Ég spurði hann hvort hann vildi ekki syngja fyrir mig lag áður en hann legði aftur af stað, mér þætti enginn fuglasöngur eins fagur og hans. En hann sagðist ekki mega tefja, hann þyrfti að flýta sér heim til Svíþjóðar, til þess að syngja inn sumarið þar. I meira en viku hefur rödd frá gullslitum söngþresti hljómað í garðinum mínum, rödd, sem er eins og flaututónar. Um dag- inn brá brúði hans fyrir. Hún faldi sig í lárviðarrunna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.