Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1954, Qupperneq 57

Eimreiðin - 01.07.1954, Qupperneq 57
EIMKEIÐIN ÖLAFUR 1 HVALLÁTRUM 209 Ólafur lætur dæluna ganga, kemur annar drengur hans hlaup- andi og æpandi og segir, að þrjátíu ær séu að flæða á skeri. I sömu andrá er sem Ólafur taki algerðum stakkaskiptum. Hann snýr sér með hægð að drengnum og segir: „Hvað þýðir að vera að æpa þetta og orga, barn. Er ekki nær að fara og snúa sér að því að bjarga.“ Með það snarast hann í bát sinn með því liði, sem fyrir hendi var. Saga þessi lýsir Ölafi vel, ákafamann- ®um og hamhleypunni. Hann gat þusað um smámuni, en tók stórum hörmum og válegum tíðindum með óbifanlegri stillingu, skjótræði og þreki. Þurfti hann og mjög á því að halda, því þó ®ð Ólafur væri hamingjumaður um flest og svo virtist sem allt snerist til farsældar, er hann tók á, báru þeim hjónum að hönd- u«i miklir harmar, er á leið ævina, og mun það hafa reynt karlmennsku Ólafs meira en flesta grunaði. Ólafur var, eins og þegar er á vikið, allra manna greiðvikn- astur, en kappsmaður mikill um störf á búinu. Eitt sinn var Það á slætti í blíðu veðri, að mig bar að garði í Hvallátrum um miðjan dag. Var ég að koma ofan af landi úr löngu ferða- lagi, og lék mér mjög hugur á að komast þegar samdægm's heim í Flatey. Ólafur var að láta flytja heim hey úr úteyjum °g hafði til flutninganna vélbát með stóran heybát í togi. Var Ólafur um skeið einn bænda þar vestra, er átti vélbát. Fast var gengið að hirðingunni og hver maður á bænum í starfi. Mér var að vanda tekið af mikilli gestrisni, og gekk Ólafur með mér til bæjar til þess að drekka kaffi. Á meðan ég er að drekka, °rða ég það við Ólaf, að hann láti skjóta mér út i Flatey. Ólafur tók dræmt í það og kvað mér ekkert liggja á fyrr en á morgun. hkyldi þá flutningur til reiðu. Fék honum, sem von var, mestur hugur á að bjarga heyjum sínum. Ég sótti mitt mál þéttings- fast og lét sem mér myndi duga liðléttingur einn til aðstoðar, eu engin urðu svör fengin um það bil, er kaffidrykkjunni lauk. Gengum við nú ofan að bæjarvörinni, og stóð þar falleg skekta í flæðarmáli, er Ólafur átti. Ég vildi ekki láta mig með öllu, kom nú í hug margra ára sjómennska mín og bið Ólaf að lána ^aér skektuna til Flateyjar. „Þú ratar ekki út úr bæjarsundinu °g drepur þig á leiðinni, karl minn.“ Ég kvaðst farið hafa leið- ina áður og vera öruggur að rata, þó að skerjótt væri. „Ég er ekki viss um að þú sért borgunarmaður fyrir skektunni, karl 14
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.