Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1954, Side 67

Eimreiðin - 01.07.1954, Side 67
EIMREIÐIN- ENGILLINN 219 hagfræði og skilaði því ekki áliti í málinu, — enda vafn- mgaminnst að vera ekki með neinar vangaveltur um það, hvort hlutirnir séu klipptir eða skornir. Hitt var víst, að ég færðist í aukana við að safna innstæðum í sparisjóðsbækur. Svo lá leið mín til Reykjavíkur, — kosinn af samsveitung- unum til að ræða rafmagnsmál við rikisstjórnina. Ég hugsaði ^uér gott til glóðarinnar að njóta fulltingis æskuvinarins við að knýja fram vatnsvirkjun fyrir sveitina, áður en Efra-Sogið yrði heizlað handa Reykvíkingum. Ég leigði mér herhergi á Hótel Rorg, lifði þar í vellystingum — var þó, sannast að segja, eins og álfur úr hól í umferða- þvögunni og margmenninu. En þarna var margt skemmtilegt °g óvænt sveitamannsaugum. Ég hugsaði ráð mitt og undirbjó áhlaupið. 1 dag mætti ég honum í Hafnarstræti. Hann var í sallafínum svörtum vetrarfrakka og með dökkan Battersby á höfðinu, stikaði stórum, enda kominn af sporléttum bændum, sem höfðu slitið mörgum kúskinnsskóm í erfiðum sauðaleitum. En fótabúnaður hans var ekki blásteinsbarkaðir skinnsokkar og ristarþvengir — heldur marrandi blankskór úr úrvals hamleðri. Þarna varð mesti fagnaðarfundur. En ósköp var nú sjálfstraust mitt brjóstum- kennanlegt við hliðina á glæsibúna heimsmanninum. Ég var bú- inn hríðarúlpu frá Vinnufatagerð Islands og með snjáðan Hektor a hausnum, kurfslegur og herðalotinn. Hann lét spurningarnar rigna yfir mig, beinlínis kaffærði tnig upp fyrir eyru í spurningum, sem mér gafst ekki tóm til að svara. Þegar hlé varð á yfirheyrslum, bauð hann mér inn í Hressingarskálann til hádegisverðar. Þar komst ég loksins að efninu, lysti erindi mínu til borgar- innar og bað hann liðveizlu. Hann ljómaði allur af áhuga og velvilja, tókst beinlínis í háaloft á stólnum, sló höndunum í kring um sig og lýsti með skáldlegu hugmyndaflugi þeim dá- semdum, þegar rafmagnið færi að hita og lýsa sveitabæina, snúa skilvindum og kaffikvörnum húsmæðranna. Og karlarnir þyrftu ekki annað en styðja á hnapp til að skafa af sér skeggbroddana. Ja, þá yrði nú notalegt að vera sjálfseignarbóndi i sveitinni. »Þá söðla ég bara um og gerist bóndi. Ö, það væri draumur! Hann var með þanda gúla af kjötkrásum, smjattaði með fyrir-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.