Eimreiðin - 01.01.1963, Blaðsíða 13
Janúar—april 1963 - 1. hefti - LXIX. ár
EIMREIÐIN
SIGURBJÖRN EINARSSON biskup:
„Trúin
á manninn(
i.
Bertrand Russell segir í heimspekisögu sinni, að heimspekin
eigi sammerkt með guðfræðinni í því, að hún glími við viðfangs-
efni, sem vísindum sé ekki fært að leysa, þekking fái ekki brotið
td mergjar. En sá sé rnunur, að heimspekin hafi skynsemina eina
að leiðarljósi, guðfræðin byggi á opinberun.
Ein þeirra spurninga, sem lieimspekin glími við, segir Russell
ennfremur, sé sú, hver maðurinn sé. Er hann það, sem hann virð-
ist vera í augum stjarnfræðingsins, agnarögn af óhreinu kolefni
og vatni, baksandi á iítilli og ómerkilegri plánetu? Eða er hann
það, sem Hamlet þótti hann vera? Eða kynni hann að vera hvort
tveggja?
Russell hefur í liuga orðin, sem Sliakespeare leggur Hamlet í
munn (Hamlet, 2. þáttur, þýð. Matthíasar): „Hvílíkt meistaraverk
er maðurinn! Hve vegsamlegur að viti, hve óendanlegur í gáfum,
hve tígulegur og undrunarverður að lögun og limaburði! Hve eng-
ilslegur í látbragði, hve Guði líkur í skilningi! Prýði veraldarinn-
ar, fyrirmynd skepnunnar!"