Eimreiðin - 01.01.1963, Blaðsíða 108
Tíl kanipenda Eímreíðarínnar
Eins og boðað var i siðasta liejti Eimreiðarinnar, verður ekki hjá þvi kom-
izt lengur að hœkka verð ritsins frá og með þessum árgangi, sem nú liefst■
Þrátt fyrir sivaxandi útgáfukostnað siðustu áirin hefur verð Eimreiðarinnar
verið óbreytt, meðan öll önnur blöð og timarit landsins hafa smáheekkað i
verði og þannig fylgt dýrtiðinni eftir jafnóðum og hún hefur vaxið. A það
má benda sem darni, að á þeim tima, sem verð Eimreiðarinnar hefur ver-
ið óbreytt, hafa dagblöð hækkað um 30 krónur á mánuði, eða úr 35
krónum í 65 krónur.
A siðustu þremur árum hefur setning, þrentun og hefting Eimreiðarinnar
hakkað um rúm 60 þrósent; sömuleiðis hefur paþþírinn i ritið hcekkað stór-
lega i verði, og ennfremur myndamót, þóstburðargjöld, ritlaun og annað í
sambandi við útgáfuna. Allir munu þvi geta sltilið, að eklti verði umflúið
lengur að hcekka verð ritsins, og hefur það vissulega verið dregið i lengstu lög■
Samkvcemt kostnaðarácetlun, sem gerð liefur verið um útgáfu Eimreiðarinnar,
hefur áskriftarverð árgangsins verið áhveðið 150 krónur innanlands og 170
krónur erlendis, en lausasöluverð hvers heftis 60 krónur.
Vcentum vér að kauþendur Eimreiðarinnar sýni skilning á þessari illu
nauðsyn. Helzt hefðurn vér kosið að geta liaft verð Eimreiðarinnar óbreytt
áfrarn, og það er oss vissulega ekki sársaukalaust, að þurfa að iþyngja þeim,
sem sýnt hafa ritinu trúnað og hollustu svo árum skiptir. En vér treystum
jmi hins vegar, að lesenclur meti Eimreiðina það mikils, að þeir séu fúsir
að laka á sig nokkra verðhcekkun til þess að tryggja áframhahlandi útkomu
hennar. Sérhver kaupandi Eimreiðarinnar er með vissurn hceiti liftrygging rits-
ins, en það eru hinir föstu áskrifendur sem lengst og bezt hafa stuðlað að
viðgangi hennar. Þeim á Eimreiðin þvi mest að þakka.
A ncesla ári fyllir Eimreiðin sjötíu ár og er þar með orðin eitt elzta bólt-
menntatimarit, sem komið hefur út samfellt svo langan tima. Það er áreiðan-
lega von og metnaðarmál megin þorra kauþenda Eimreiðarinnar, að hún geti
haldið áfram stöðugri útkomu og þurfi ekki að slaka á um vandað efni og
frágang, svo að hún megi áfram gegna forystuhlutverki meðal islenzkra tima-
rita og halda sessi sinum sem eitt elzta og merkasta bókmenntatimarit á Norð-
urlöndum.
Jafnframt því, sem Eimreiðin heitir á stuðning og trúnað eldri kaupenda
sinna, leitar hún nú á ný mið og ccskir nýrra lesenda og fleiri kaupenda, sem
lelja það ekki eftir sér, að leggja af mörkum 150 hrónur á ári til viðhalds og
eflingar þessu gamla og merka timariti, sem geymir skáldskap og ritgerðir utn
ýmis efni, eftir fremstu rithöfunda og menntamenn þjóðarinnar frá j>vi fyrir
aldamót og fram á þennan dag.
INGÓLFUR KRISTJÁNSSON.