Eimreiðin - 01.01.1965, Qupperneq 84
72
EIMREIÐIN
allgotl, sem ber heitið Maria la
Blanca.
Ég er nú kominn að því töfra-
orði, sem nefnist list. Vissulega á
Toledo sína list og listsögu. Tvo
menn ber þó miklu hæzt, Annar
þeirra var hinn ódauðlegi höl'und-
ur „Don Quichote“, Cervantes, en
hinn sem raunverulega var hvorki
Toledóbúi né Spánverji, en lifði
hér samt rnestan hluta ævi sinnar
var gríski listmálarinn E1 Greco.
Hér í Toledo fann E1 Greco köll-
un sína, hér settist hann að ungur
að árum og hér lilði hann og dó.
Nafn hans er óalináanlega tengt
spanskri listasögu, enda í hópi
þeirra listamanna sem hvað liæzt
gnæfa 1 veraldarsögunni.
Hús E1 Greco í 'I’oledo er að ut-
an sem innan með sömu ummerkj-
um og þegar hann bjó í því l'yrir
nokkrum öldum. Rúmið hans cr
þar á sama stað, vatnskannan og
tiníatið sem hann þvoði sér úr er
við rúmgaflinn. Spunarokkur móð-
ur hans er í setustofu og að öðru
leyti er frá öllu gengið eins og
meðan listamaðurinn bjó í húsinu
sjálfu, meira að segja hanga sömu
málverkin á veggjum, sum eftir
sjálfan hann, önnur eftir samtíð-
armenn hans og aðra listamenn.
Um E1 Greco er sagt, að liann
hafi í list sinni verið samtímis guð
og djöfull. Sagan er þess minnug
að hann samdi sig ekki að annarra
háttum, hann var talinn kynvill-
ingur, og sérvitringur var hann út
í æsar, fór eigin götur, háði innri
baráttu rnilli himna og heljar og
aðhylltist hvorttveggja — einmana
sál á mörkum vitfirringar og ofvits.
Þetta einmana ofurmenni naut
hvorki skilnings né stuðnings, til
þess lágu leiðir hans of fjarri lista-
lögmálum samtíðarinnar og venj-
um mannlegs lífs. Loks bugaðist
liann og varð vitskertur. I.istaverk
hans bera þessari innri baráttu
gleggst vitni, þau eru eins og líl
hans og hugsanir. Sambland al
dauða og djöfli, dýpstu sorg og
himneskri sælu — þær eru ægileg-
ar, djöfulegar eða töfrandi í feg-
urð sinni. Túlkun listamannsins er
svo sterk að áhrifin hrynja yfir
áhorfandann, hvort liclilur af ein-
skærri hrifningu eða viðbjóðslegri
hrylling. Jafnvel sá, sem gersneydd-
ur er auga og till'inningu fyrir
myndlist, gengur ekki framhjá
myndurn E1 Greco án þess að
staldra. Og það sem meira er, að
áhorfandinn tekur ósjálfrátt og
óafvitandi afstöðu til listar hans,
annaðhvort með eða móti. Hlut-
leysi er óhugsandi í jal'n mögnuðu
andrúmslofti. Þótt E1 Greco’s hafi
að engu verið getið lengi vel og
þótt hann hafi sjálfttr beðið ósig-
ur í listsigri sínuin, jtá er máluni
nú jsannig komið, að menn eiga
ekki nógu sterk orð lil að lýsa
snilld hans. Sumir lelja hann nresta
málara allra tíma, mesta séní, seni
jörðin hefur alið til jressa.
Toledo á mikla og margjrætta
sögu að baki. Arabar og gyðingar
lögðu grundvöllinn að veldi To-
ledoborgar Irefur mér verið tjáð.
Gyðingar segja sjállir að það hafi
verið Jreir sem byggðu hana, á
þeim árum sem Nebukaclnezar
heitinn lagði Jerúsalem í rúst og
hrakti gyðinga út úr Palestínu.