Eimreiðin - 01.01.1965, Blaðsíða 51
EIMREIÐIN
39
því. Sauðarverðið mundi reynast honunr sem frækorn, er sáð væri
í frjosaman akur og gæfi margfalda uppskeru. Tökum eitt einasta
dæmi. Bóndi í Húnavatns- eða Skagafjarðarsýslu þarf nauðsynlega
að bregða sér suður til Reykjavíkur urn túnasláttinn. Hann verður
þá annaðhvort að fara landveg með marga hesta og vera burtu frá
heimilinu að minnsta kosti vikutíma, eða, ef liann er hestalítill eða
heilsutæpur, með strandferðaskipinu og flækjast með því hringinn
í kringum landið og vera hér um bil viku á skipsfjöl liveija leið.
Hvað skyldi nú slíkt ferðalag kosta hann urn hásláttinn? En lægi nu
járnhraut norður um land milli Reykjavíkur og Akueyrar, Jrá gæti
liann, ef eimlestin væri nokkurn veginn hraðgeng, komizt til Reykja-
víkur á hálfum degi, og komi eimlestin livergi við, jafnvel á iáein-
uni klukkustundum. Skyldi liann ekki verða búinn að lá sauðarverð
það, sem liann liefði lagt í járnbrautina, borgað að fullu eftir fyrstu
lerðina?
En það er varla liætt við því, að á nýjum skatti þurfi að lialda.
Landssjóðurinn getur borgað kostnaðinn, ef rétt er að tarið. El öllu
því fé, sem ætlað er til þjóðvega, er varið til járnbrauta, verða hin
nýju útgjöld til þeirra ekki svo ýkjamikil. Auk þess mundi lands-
sjóði sparast annar kostnaður, er járnbraut væri lögð norður um
land, nefnilega til strandferða. Allar hringferðir mundu Jrá reynast
óþarfar og falla burt af sjálfu sér. Því hver ætli vildi vera að liring-
sóla með strandferðaskipi millum Suðurlands og Norðurlands, Jreg-
ar hann gæti komizt á járnbraut á margfallt skemmri tíma og tyrir
minna verð?
Hin nýja stefna í samgöngumáli voru ætti því að vera þessi: 1)
A landi: tvær aðaljárnbrautir, önnur frá Reykjavík austur í Árnes-
°g Rangárvallasýslur, hin norður unr land til Akureyrar. Út trá
þeim smábrautir, þriðjungsbrautir, sporbrautir eða akbrautir. 2) A
sjó: Tíðari skipaferðir milli íslands og útlanda, einkum Englands.
Smáskip með ströndum fram, eitt frá Reykjavík til Austurlandsins,
annað til Vesturlandsins, en engar hringferðir. Auk Jress að minnsta
kosti einn gufubátur í hverjum landsfjórðungi, einn á Suðurlandi,
annar á Yestfjörðum, Jrriðji fyrir Norðurland, fjórði á Austfjörðum.
hetta er Jrað takmark, sem við ættum að keppa að fyrst unr sinn
og Jregar því væri náð, mætti fyrst segja, að samgöngur vorar væru
komnar í viðunanlegt liorf. Þá mundi líka auðmagn landsins skjótt
aukast svo, að liægt væri að lialda lengra áfram í söniu stefnu. En
skorti oss þor og Jrrek til að leggja út í þann kostnað, sem Jaessar