Eimreiðin - 01.09.1965, Page 48
244
EIMREIÐIN
Thule-menningin, eða Inugsuk-menningin, eins og farið er að
kalla hana síðar, verður alls ráðandi á Grænlandi á 14. öld. Yfir-
burðir hennar eru fólgnir í hinum frábæru bátum hennar og að-
lögunarhæfni þess fólks, er bar hana uppi.
Dorset-menn hverfa nú af sjónarsviðinu, en margir eru þeirrar
skoðunar, að þeir hafi hrakizt til harðbýlustu héraða landsins, og
bendir margt til þess, að í menningu Austur-Grænlendinga séu
sterk áhrif frá Dorset-menningunni. Vera má, að íbúarnir í Ang-
magsalik séu afkomendur Dorset-manna.
Hér liefur nú í stuttu máli verið rakin saga byggðar á Grænlandi.
En hvaðan eru Eskimóar komnir, og hvaða fólki eru þeir skyldir?
Mannfræðilega teljast Eskimóar til mongólska kynþáttarins, og eru
skyldir Indíánum og ýmsu Asíufólki. Þykir líklegt, að þeir séu
upprunnir í Asíu, og eins og áður er að vikið, halda sumir, að þeir
séu ættaðir frá Evrópu. Ekki verður neinum getum að því leitt,
hvenær þeir koma til Ameríku. Sennilega hafa þeir fylgt hrein-
dýrahjörðunum að Beringshafi, en hvort þeir hafa farið yfir það
á tíma, er ganga mátti þurrum fótum milli Ameríku og Asíu, eða
síðar, og þá notað báta, er enn óútkljáð mál.
Ekki verður fundinn skyldleiki með tungu Eskimóa og þjóð-
tungum annars fólks, og náinn skyldleiki allra mállýzkna þeirra
bendir til þess, að þeir hafi verið ein heild fram eftir öllum öldum.
Um allt norðurhvel jarðar er hreindýrið mikilvægasta veiði-
dýrið og undirstaða efnahagslífsins ásamt lax- og silungsveiðum-
Eskimóar hafa vafalaust stundað hreindýraveiðar árþúsundum sam-
an í Alaska og Kanada og menning þeirra áður fyrr í engu verið
frábrugðin menningu annarra hreindýraveiðimanna á þessum slóð-
uin. Hin eiginlega Eskimóamenning verður ekki til fyrr en þeir
fara að stunda hval- og selveiðar, eða eins og danski vísindamaður-
inn Rink sagði: „Menning Eskimóa verður til, þegar aðlögun
þeirra að hafinu hefst.“ Sérkenni Eskimóamenningarinnar er ein-
mitt sjávarveiðin og hin flókna og frábæra tækni, sem Eskimóar
beita við veiði hvala og sela.
Fá svæði jarðarinnar eru harðbýlli en íshafsströnd Norður-Amer-
íku. Vetur eru þar lengri en annars staðar á byggðu bóli, og aldrei
eiginlegt sumar. Fólkið, sem þessi héruð byggir, verður að gernýta
það, sem landið liefur upp á að bjóða. Allt líf Eskimóa hefur verið
stöðug barátta við hina óblíðu náttúru. Þrátt fyrir gnægð veiði-
dýra var hungrið alltaf á næstu grösum, og varð oft ekki komizt