Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1946, Page 34

Ægir - 01.02.1946, Page 34
56 Æ G I R 3. Togaraútgerðin. Engin breyting varð á útgerð togaranna á árinu 1945 frá því sem verið hefur undan- farin styrjaldarár. Tala þeirra var hin sama og árið áður, 31, þó má geta þess, að tvö skipanna, íslendingur og Ólafur Bjarna- son, stunduðu sára lítið veiðar með botn- vörpu, en keyptu í stað þess fisk og sigldu með liann til sölu á brezkum markaði eða annars staðar. Bæði þessi skip eru þó talin með togurunum að þessu sinni. Flest skip- anna stunduðu eingöngu ísfiskveiðar og sigldu sjálf með aflann á erlendan markað, en nokkur þeirra stunduðu veiðar aðeins fáa daga og létu aflann i önnur skip. Tvö skipanna, sem áður voru nefnd, stunduðu sildveiðar um sumarið. í töflu XVIII er yfirlit yfir útgerð togar- anna á árinu 1945. Tala ferðanna var lítið eitt hærri nú en árið áður og hefur aðeins einu sinni fyrr, árið 1940, verið hærri. Með- alfjöldi ferða var 12,7, en 12,5 árið 1944. Hins vegar fóru nú aðeins 23,3 dagar i hverja ferð, en 24,1 árið áður. Meðalút- 1394 kryddaðar og 3356 verkaðar á annan liátt. Svo sem áður getur voru nokkur færeysk skip leigð til síldveiða um sumarið. Voru þau 14 að tölu og veiddu samanlagt 26 079 mál í bræðslu og 2559 tn. í salt og frysti- hús. taldstími togaranna varð hinn sami, eða því sem næst, og árið áður, eða 301 dagur. Lifrarmagnið var að þessu sinni % minna en næsta ár áður, og mun það liggja aðal- lega í því, að samsetningu aflans var öðru vísi háttað, þ. e. ufsaaflinn var nú nær helm- ingi minni en árið áður, en ufsinn er að jafnaði mjög lifrarauðugur fiskur. Einnig var heildaraflamagnið Htið eitt minna. í töflu XIX er sýnt hver var heildarafli tog- aranna árin 1945 og 1944 og hvernig hann skiptist eftir tegundum og mánuðum. Ef at- Iiuguð er skipting aflans niður á mánuðina, kemur greinilega í ljós, að þrir mánuðir, þ. e. frá marz—maí, eru hæstir, en það eru ein- mitt vertiðarmánuðirnir. Kemur um það hil Vs hluti ársaflans á það tímabil. Eru hlutföllin þar hin sömu og þau voru árið áður. Samsetning aflans eftir tegundum hefur hreytzt allverulega frá fyrra ári. Ufsinn og j)orskurinn hafa skipt um forystuhlutverk, þannig, að árið 1944 var hluti ufsans tæp- lega 49% af heildaraflanum, en þorsksins aðeins læp 38%. En þetta hefur breytzt þannig, að árið 1945 er hluti þorsksins um 50%, en ufsinn er aðeins rúm 25%. Þe'ssi hreyting liggur að mestu í því, að togarar- arnir lögð sig minna eftir ufsanum en áð- ur, með því að verðið á honum á hrezka markaðinum lækkaði mjög mikið um sum- arið. Var verðlækkunin á ufsanum mun meiri en á þorskinum, svo sem síðar mun getið. Mestur var ufsaaflinn seinustu þrjá níánuði ársins og komst í desember allt upp i 68%, en hafði i nóvember 1944 komizt upp í 75% af aflanum í þeim mánuði. Aftur á móti var þorskafli mestur eins og áður á vertíðartímabilinu fvrri hluta ársins, frá janúar og fram í júní. í aprilmánuði var hluti þorsksins mestur, eða um 85% af heildaraflanum. Karfaaflinn var hlutfalls- lega ineiri nú en árið áður, eða 14% á móti 7,5% árið 1944. Var hann aðallega veiddur um sumarið og fram á haustið og komst hluti lians í júlí allt upp í rúm 40% af lieildaraflanum í þeim mánuði. Annarra fisktegunda gætti mjög lítið í togaraaflan-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.