Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1934, Page 42

Ægir - 01.01.1934, Page 42
36 ÆGIR Auglýsing um neyðarmerki skipa í sjávarháska. Samkvæmt lögum nr. 56, 23. júní 1932, eru hér með settar eítirfarandi reglur: 1. gr. Þegar skip er í háska og æskir hjálpar frá öðrum skipum eða úr landi, skal það viðhafa eða sýna eftirfarandi merki, annaðhvort öll í einu eða hvert út af fyrir sig. Á daginn: 1. Fallbyssuskot eða önnur hvell-merki með hér um bil einnar mínútu millibili. 2. Neyðarmerki það, sem táknað er í hinum alþjóðlegu merkjareglum. 3. Fjarlægðarmerki, sem er ferhyrndur fáni og kúla eða eitthvað. sem líkist kúlu, fyrir ofan eða neðan fánann. 4. Notkun þokubendingartækis í sífellu. 5. Alþjóða neyðarmerki, með firðriti eða firðtali, eða hverskonar annari aðferð til að gefa fjarlægðarmerki. Á nóttn: 1. Fallbyssuskot eða önnur hvell-merki, með hér um bil einnar minútu millibili. 2. Bál á skipinu (t. d. frá brennandi tjörutunnu, oliutunnu o. s. frv.). 3. Eldflugur eða sprengikúlur, sem skotið er með stuttu millibili, einni og einni i einu, og strá út neistum með hvers- konar lit og hætti sem er. 4. Notkun þokubendingartækis í sífellu. 5. Alþjóða neyðarmerki, með firðriti eða firðtali hverskonar annari aðferð til að gefa fjarlægðarmerki. Hin áður nefndu firðritunar eða firð- tals neyðarmerki skulu byrjuð með alþjóða-firðritunar kallmerkinu, verði því við komið. 2. gr. Bannað er að nota áðurgreind merki samkvæmt 1. gr. nema í þeim tilgangi, að tilkynna að skip sé í háska statt, enn fremur er bannað að viðhafa önnur merki, sem hægt er að blanda saman við nokkur af áðurnefndum merkjum. Þau firðritunar- og firðtals-neyðar- merki, ásamt firðritunar-kallmerki því sem nefnd eru í 1. gr., má að eins nota á skipum, sem eru í alvarlegri og yfir- vofandi hættu og þarfnast bráðrar hjálpar. Allt af þegar annars þarf hjálpar við, eða ef skip vill gera vart við, að að því geti rekið, að nauðsynlegt verði síðar að gefa köllunar- eða neyðarmerki, skal nota alþjóða-skipreikamerki það, sem um er getið í 6. gr. hér á eftir. 3. gr. Sendihraði tilkynninga i firðriti um neyð, skipreika eða öryggi, má ekki fara fram úr 16 orðum á mínútu. 4. gr. Alþjóða-neyðarmerkið eftir al- þjóða-merkjakerfinu er gefið með merki- veifunum N. C. Alþjóða-neyðarmerki sent með firð- ritun er . . . — — — ... Alþjóða-neyðarmerki sent með firðtal er orðið „KAI D AY“. 5. gr. Alþjóða-firðritunar-kallmerkið er röð af 12 strikum, sem send eru á einni minútu, og varir hvert strik 4 sek., en bilið milli hverra tveggja strika í eina sek. Þetta sérstaka kallmerki er að eins til að gera vart við sig þar, sem áhöld eru sem taka móti slíkum merkjum, og skal merkið eingöngu notað í þeim tilgangi að tilkynna, að neyðarmerki komi á eftir. 6. gr. Alþjóða-firðritunar-skipreika- merkið eru stafirnir XXX sent með Morse-merkjum, þannig að bókstafirnir séu greinilega aðgreindir. 7. gr. Auglýsing þessi öðlast gildi þegar í stað. Atvinnu- og saragöngumálaráðuneytið 3. júlí 1933. Magnús Guðmundsson. Vigfús Einarsson. Ritsíjóri: Sveinbjörn Egilson. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.