Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1959, Síða 9

Ægir - 15.12.1959, Síða 9
ÆGIR — AFMÆLISRIT 7 að mestu að eyðileggja stofninn og sjást þess merki enn þann dag í dag. Um svipað leyti hófu Normenn hval- veiðar frá fleiri stöðum í senn. Fyrst á Vestfjörðum og síðar á Austurlandi, með mörgum skotbátum. Þessi veiði var rekin í nærfellt 30 ár með góðum hagnaði þar til veiðin borgaði sig ekki lengur. Á árunum kringum síðustu aldamót, tókst Englendingum með togurum sínum, er þá voru nýkomnir til sögunnar, að tæma flóa og víkur landsins af hinni verðmæt- ustu fisktegund — skarkolanum — er aldrei hafði verið veiddur áður svo telj- andi væri. Kolaafli Englendinga var næstu árin geysimikill, svo nema mun mörgum milljónum króna, svo eftir fá ár var afl- inn þrotinn og hefur verið örlítill síðan. Hér eni það útlendir fiskimenn, er ger- eyðileggja tvær hinar verðmætustu fisk- tegundir við landið, luÓuna og kolann. Á tímabilinu frá 1880 til 1930, eða nær- fellt 50 ár, stunduðu Norðmenn síldveið- ar hér við land bæði á fjörðum inni og við strendurnar og höfðu söltunarstöðvar. Svona má lengi telja. En hér skal staðar nema. I heimsstyrjöldinni fyrir 1914—18, og eins í hinni síðari 1939—45, varð hlé á fiskveiðum erlendra þjóða við landið. Þá voru það einkum Bretar er fengu allan þann fisk er íslendingar gátu framleitt, og voru mjög þakklátir fyrir. En strax við lok ófriðarins 1945 byrjuðu Bretar aft- ur fiskveiðar sínar við ísland, en bönn- uðu jafnframt íslendingum að selja fisk sinn í Englandi eins og þeir höfðu gert áður um áratugi. Þetta þótti Islendingum óréttlátt eins og von var. En nú mun banni þessu aflétt fyrir skömmu. Snemma í síðasta ófriði flúðu Englend- ingar með eina flotadeild sína til íslands af ótta við loftárásir Þjóðverja. Þeir völdu Hvalfjörð fyrir flotastöð. Eftir 2 ár fóru þeir á brott. Hvort um nokkurt endur- gjald hefur verið að ræða í þessu tilfelli er mér ókunnugt. En svo komu Amerikanar og tóku Kefla- vik sem flugvöll og herstöövar og síðar fleiri landsvæði á Norður- og Austurlandi. Maður skyldi ætla að fyrir öll þessi fríð- indi kæmi ríflegt endurgjald, þar sem í hlut eiga annars vegar fátæk smáþjóð, en hins vegar ríkasta stórveldi heimsins — Bandaríkin. En því miður er ekki slíku að fagna. Samkvæmt varnarsamningnum milli íslands og Bandarikjanna frá 1951, sem enn er í gildi, og ég hefi séð, lætur Island Bandaríkjunum í té öll þau land- svæði sem þeir hafa til afnota endur- gjaldslaust. Auk þess greiða þeir enga tolla eða innflutningsgjöld af öllum þeim ógrynnum af vörum og verðmætum sem þeir árlega flytja til landsins. Eins og að framan greinir eru fiski- miðin við landið gersópuð af erlendum fiskimönnum. Auk þess er landið í hers- höndum. Ég hefi hér að framan viljað benda á, og fært fram mörg dæmi þess að ísland hefir gegnum aldirnar látið af hendi við erlendar þjóðir ómetanleg verðmæti án nokkurs endurgjalds. Engin smáþjóð hef- ir ráð á slíku. Þetta eru íhugunarverð atriði að mínu áliti. Ritstjóranum, Ægi og Fiskifélaginu óska ég góðs gengis í framtíð. Með beztu kveðju. Matth. Þórðarson. Janúar 1958.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.