Ægir - 15.12.1959, Side 23
ÆGIR — AFMÆLISRIT
21
hann m. a. helzti hvatamaður að notkun
þorskanetja. I jan.—febrúar blaði 1909
skrifar Bjarni alllanga grein um tilraunir
með þorskanet víða um land, mest fyrir
hans tilstilli. Eftirfarandi kafli er ljóst
dæmi um það, að nýjungar eiga æðioft
örðugt uppdráttar:
Fyrstar í röðinni og afleiðingamestar eru til-
raunirnar í Þorlákshöfn. Bvrjunin að þeim er
þessi: Vetrarvertiðin 1906 hafði verið mjög
rýr, eins og fleiri vertíðir næst á undan. En í
Þorlákshöfn hefur aðeins verið brúkuð lóð,
eins og í öðrum veiðistöðum í Árnessýslu og
mikill meiri hluti aflans ýsa. Einn af formönn-
unum í Höfninni var Gísli Gíslason, frá Rauða-
bergi í Fljótshverfi, þá nýlega fluttur að Ós-
eyrarnesi. Hann fór heim til sín uin páskana
og datt þá í hug að hafa með sér 33 faðma
langa laxa-fyrirdráttarnót með 3%" riðli, er
hann átti, þegar hann fór aftur út í verið, og
reyna hvort ekki yrði fiskvart í liana, þar sem
aflinn á lóðir liafði nærri algerlega brugðizt
tilþesstíma. Hann lagði nótina (þorskanet hafði
hann aldrei séð) á 12 faðma dýpi og var þegar
við fyrstu umvitjun vel var í hana af þorski
og stútungi og á einni viku, sem hún lá, fékk
hann 360 fiska, þar af Vi undir málfiskur,
margt af hinum vænn þorskur (allur fiskur-
inn mjög feitur) og svo 30 stórufsa.
Þessi tilraun og heppni Gisla vakti eins og
eðlilegt var mikla athygli i veiðistöðinni, og
ekki laust við, að sumir öfunduðu hann af
hlutarbótinni.
Nú hefði mátt ætla, að margir þeir, er gera
út í Þorlákshöfn, mundu hafa viljað gera ýtar-
legri tilraunir á næstu vertíð, 1907. Það vildu
og sumir að vísu, en þá komu aðrir, er heyrt
höfðu ýmislegt ljótt af netabrúkun í Faxaflóa
og töldu veiðistöðinni stofnað í voða, ef byrjað
yrði á netaveiðum, hún væri komin í nógu
mikla niðurlægingu af undangengnu aflaleysi,
og nóg væri kostað til útgerðar áður, þótt netin
bættust ekki við o. s. frv. — Var svo haldinn
fundur með formönnum og þar samþykkt að
banna allar tilraunir með þorskanet í Þorláks-
liöfn. Þessu banni var hlýtt, þótt hart væri.
Vertiðin 1907 varð enn lélegri en 1906. Þá
var það nær vertíðarlokum, að einum formanni
varð að orði við Gísla, er þeim var rætt um
aflaleysið: „Ekki hefði vertiðin orðið aumari,
þótt menn hefðu brúkað þorskanet". Því var
Gísli samdóma. Bundu þeir þá fastmælum með
sér, að reyna þorskanet á næstu vertíð, þrátt
fyrir bannið og fengu með sér 4 aðra formenn
í félagið. Þegar þetta fréttist, brá svo við, að
hinir formennirnir, jafnvel þeir, er mest höfðu
verið á móti netunum, ásettu sér einnig hið
sama, bannið var þannig þegjandi numið úr
gildi og allir útveguðu sér regluleg þorskanet
fyrir næstu vertíð.
Afli Frakka við ísland 1907.
I sama blaði er sagt, að afli Frakka við
ísland 1907 hafi verið miklu meiri en árið
áður. Til Bordeaux hafi komið 30 skip frá
íslandi með 5*4 milljón punda af saltfiski.
Alls hafi 60 botnvörpuskip og 61 seglskip
stundað veiðar við fsland það ár.
Útgáfa Ægis stöðvast — og hefst á ný.
Á miðju ári 1909 hætti Ægir að koma
út. Varð hlé á útkomunni í tvö og hálft
ár, eða þangað til í janúar 1912, en þá
kemur út 1. tbl. 5. árg., og er nú kominn
nýr útgefandi. Um þetta segir svo í upp-
hafsorðum:
Hér kemur aftur fyrir almenningssjónir
fiskiveiðiritið „Ægir“. . . . Þótt ritið hafi legið
niðri í 2% ár, þótti ekki ástæða til að breyta
nafni þess, heldur miklu fremur að láta nafnið
haldast, því að ritið liafði hlotið vinsældir
miklar, og hér er aðeins að ræða um framhald
útgáfunnar, er starfar í saina anda og keppir
að sama marki og áður, sem sé vexti og fram-
þróun fiskiveiða vorra og siglinga. En þess ber
að geta, að ritið er miklu færar nú en áður að
starfa að ætlunarverki sínu, þar sem útgefandi
þess er nú Fiskifélag fslands, sem hlýtur að
eiga langa og merkilega framtíð fyrir hönd-
um. ...
Fiskifélag íslands stofnað.
Þá er sagt frá tildrögum að stofnun
Fiskifélagsins, þess getið, að nokkrum ár-
um áður hafi sú hugmynd komið fram, að
nauðsyn bæri til að stofna félag, sem
starfaði á sama hátt fyrir sjávarútveg-
inn og Búnaðarfélag Islands fyrir land-
búnaðinn. Ekkert varð þó úr framkvæmd-
um, en í lögum um Fiskveiðasjóð íslands
frá 10. nóv. 1905 segir í 4. gr.: „Verði
stofnað almennt fiskiveiða- eða útgerðar-
félag fyrir land allt, í nokkurri líking við
Búnaðarfélag Islands, skal leita álits slíks
félags um lánveitingar, styrkveitingar og
verðlaunaveitingar úr sjóðnum“. Um þetta
segir svo í Ægi: