Ægir - 15.12.1959, Síða 67
Æ ( ?IR — AFMÆL ISRIT 65
TAFLA IV.
1900 1910 1920 1930 1940 1945 1950 1957
Reykjavík 6.682 11.600 17.679 28.052 37.879 46.578 56.096 67.589
Aðrir kaupst. 3.431 6.413 11.377 17.372 20.305 24.868 32.094 42.541
Kauptún
yfir 300 5.448 9.451 11.389 12.730 15.414 15.436 16.154 20.346
15.561 27.464 40.445 58.154 73.616 86.882 104.344 130.476
Kaupstaðir í % (19.8%) (32.2%) (42.7%) (53.5%) (60.8%) (66.6%) (72.3%) (78.2%)
Sveitir 62.919 57.719 54.245 50.475 47.552 43.474 39.919 36.355
Samtals 78.470 85.183 97.690 108.629 121.168 130.356 144.263 166.831
Þessi þróun til .myndunar þéttbýlis
byrjaði seinna og varð örari hjá okkur
en flestum öðrum þjóðum. — En hún var
óhjákvæmileg, og er ekki ofsagt, að hún
hafi verið grundvallarskilyrði þeirrar
fólksfjölgunar og jafnframt stórbættra
lífsskilyrða, sem hér hafa átt sér stað. —
Einnig má segja, að hún hafi verið og sé
undirstaða þeirrar velmegunar, sem nú
ríkir víðast hvar í sveitum landsins.
Fyrst í stað var það sjávarútvegurinn,
— fiskveiðar, fiskverkun og útflutningur
þeirra afurða, sem skapaði hina auknu at-
vinnumöguleika við sjávarsíðuna. — En
síðar komu aðrar atvinnugreinar til í vax-
andi mæli, — verzlun og samgöngur, iðn-
aður og ýmis konar þjónustustörf, við-
gerðir, handiðnaður o. fl.
Tafla V. sýnir fjö’da sjómanna á þil-
skipum öllum, 12 br. rúml. og stærri, en
tafla VI. sýnir fjölda sjómanna á þiljuð-
um bátum undir 12 br. rúmlestum og öll-
um opnum bátum.
TAFLA V.
Ár Fjöldi skipverja Meðaltal
1905 2.318 13.7
1910 2.093 14.1
1920 2.567 13.6
1930 3.845 12.8
1939 4.009 10.8
1945 3.913 12.1
1950 5.059 12.1
1957 5.420 11.9
TAFLA VI.
Ar Fjöldi skipverja
1901—1905 8.066
1906—1910 7.578
1911 7.175
1920 6.380
1930 3.872
1939 2.592
1945 1.262
1950 737
1957 788
Skipverjum á opnum bátum og smærri
þilfarsbátum hefur fækkað jafnt og þétt,
enda hefur bátunum sjálfum mjög farið
fækkandi, sbr. töflu II. hér að framan. —
Mest mun smábátaútgerðin hafa orðið
1902, er gerðir voru út 2.165 bátar með
samtals 8.618 sjómönnum. —
Samkv. töflu V. fjölgaði sjómönnum á
stærri þilskipum lítið frá 1910—’20, — og
gefur taflan ekki rétta mynd af þróuninni
þau árin. — Á árinu 1912 var fjöldi
sjómanna 2.594, en það ár munu skip-
stjórar hafa verið taldir með í fyrsta
skiptið. — Hámarki nær sjómannafjöld-
inn á árinu 1917 og er 2.945. — Hins
vegar var töluverður hluti togaraflotans
seldur úr landi skömmu fyrir lok heims-
styrjaldarinnar fyrri. — Fækkaði þá
skiprúmum og sjómönnum.
Þess skal getið hér. að tölurnar um
fjölda sjómanna í báðum töflunum eru
hámarkstölur og merkja fjölda sjómanna
á þeim tímum árs, þegar mest er gert