Ægir

Volume

Ægir - 15.12.1959, Page 93

Ægir - 15.12.1959, Page 93
ÆGIR — AFMÆLISRIT 91 að þjóðin varð að keppa að því að afla sér sjálf mestallrar neyzluvöru heimafyr- ir. Útflutningur var lítill, en helzt þó á þeim vörum, sem þjóðin gat alls ekki nýtt sjálf eða voru umfram þarfir hennar. Mest munaði um landbúnaðarafurðir. Áherzla var ekki lögð á vöruskipti í jafn- ríkum mæli og síðar tíðkaðist. Þótt Is- lendingar sæju útlendinga stunda fiskveið- ar af kappi og sjálfsagt oft með góðum árangri úti fyrir ströndum lands síns á stórum skipurn, höfðu þeir lengi vel ekki getu til að fylgjast með. Á þessu varð fyrst breyting að marki með skútu-útgerð- inni og síðan alveg sérstaklega með vél- báta- og togaraútgerðinni. Breytingin varð til þess að draga að sér fólk úr strjál- býlinu; bæir og þorp mynduðust og stækk- uðu óðfluga. Tækninni fleygði fram, skip- um fjölgaði, fóikið þyrptist um sjávarút- veginn jafnframt því sem verzlunin færði út kvíarnar og dró líka til sín fólk. Með þessu jókst framleiðslumagn sjávarafurða óðfluga og varð brátt langt umfram neyzluþörf þjóðarinnar. Verður þetta vel ljóst af samanburði á útflutningsmagni landbúnaðarafurða og sjávarafurða um síðustu aldamót og síðan. Um aldamótin voru þessar afurðir nokkuð jafnar að út- flutningsverðmæti, en nú er svo komið, að lítils gætir í útflutningi annarra afurða en sjávarafurða. — Fljótt kom þess vegna að því, að stórátök þyrfti að gera varð- andi útflutningsverzlunina. Fyrirkomulag afurðasölunnar fór að skipta miklu máli fyrir alla þá, sem við sjávarútveg voru riðnir. Reynslan sannaði, að það eru ekki fyrst og fremst hagsmunir og hagnaðar- von verzlunarmannsins, sem rekur á eftir því að halda verðlagi útflutningsvörunn- ar sem hæstu, heldur og hagsmunir fram- leiðendanna sjálfra. Þessi staðreynd leiddi því að lokum til þess, að framleiðendur sjávarafurða tóku sjálfir að annast sölu útflutningsvöru sinnar. Langt fram eftir þessari öld voru aðalútflutningsvörur sjávarútvegsins saltfiskur, aðallega þorsk- ur og saltsíld. Markaður var óstöðugur eins og oft vill verða, góð ár og slæm skiptust á. Vegna skipulagsleysis í af- urðasölunni urðu útvegsmenn oft fyrir stóráföllum. Afleiðingarnar af þessu skipulagsleysi komu mjög fljótt fram, þeg- ar sjávarafurðirnar tóku að verða höfuð- stofn útflutningsframleiðslunnar. Sézt það bezt af því, að þegar árið 1913 kemur fram í Ægi hugmyndin um stofnun alls- herjar sölufélags fiskframleiðenda. Það átti þó furðulega langt í land, að úr þessu yrði bætt og varð það ekki fyrr en S. í. F. var stofnað 1932 og Síldarútvegsnefnd sett á laggirnar 1934. Til þess að gera langa sögu stutta skal þess getið, að svo brá við strax á fyrstu starfsárum þess- ara stofnana, að verðlag þeirra afurða, sem þær seldu, hækkaði, auk þess sem meira öryggi skapaðist um afurðaverðið og framleiðendur höfðu og hafa enn meiri vissu í byrjun hvers vinnslutímabils um verðlag framleiðslu sinnar. Þetta leiddi líka síðar — að vísu alllöngu síðar — til þess, sem telja má einn merkasta áfanga í sögu bátaútvegsins, að festa skapaðist um verð á nýjum fiski; þess verður þó að geta hér, að frystiiðnaðurinn átti mikinn þátt í að þessi festa skapaðist. Og í framhaldi af þessu ber einmitt að geta þess, að þegar hraðfrysting fisks kom til sögunnar, fundu þeir aðilar, er þar að stóðu, skjótt, að hentast væri, að stofnað yrði til allsherjarsamtaka um sölu hraðfrysta fisksins. Var fljótlega hafizt handa um stofnun slíkra samtaka, en þó hefir enn ekki tekizt að sameina alla freð- fiskframleiðendur í ein allsherjarsölusam- tök. Enn er allmikið los á sölufyrirkomulagi ýmissa sjávarafurða, svo sem skreiðar, fiskmjöls o. fl. Á það sínar orsakir, sem eigi verða raktar hér. Þess verður þó vart langt að bíða, að breyting verði á þessu. Ég hefi orðið alllangorður um sölu sjáv- arafurða. Mun mörgum lesanda e. t. v. finnast þar nokkuð vikið af leið, er rætt skal um vélbátaútveginn. Ekki vil ég þó fallast á það. öllum má Ijóst vera, að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.