Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.12.1959, Qupperneq 142

Ægir - 15.12.1959, Qupperneq 142
140 ÆGIR — AFMÆLISRIT grein í Ægi 23. apríl 1922, og segir þar m. a.: „Eftir öllu útliti á fiskur héðan góða framtíð á Spáni og í Portúgal, að því geta allir stutt, með því að vanda verkun og meðferð alla á fiskinum“. I skýrslu fiskifulitrúans á Spáni, Helga Guðmundssonar. sem birt er í maíhefti Ægis 1930 segir svo: „Okkur er það gleðiefni, að geta sagt frá því, að yfir leitt voru innflytjendur allsstaðar ánægð- ari með verkun og mat á fiskinum okkar síðastliðið ár heldur en undanfarin, þó menn væru varla nokkursstaðar fyllilega ánægðir með það enn“. Eru aðalaðfinnsl- urnar þessar: Roði á fiskinum bæði full- verkuðum og léttverkuðum. Of mikið salt sjáist á fiskinum, og að of misjafnar stærðir séu í pakka. í grein um norska fiskmatið í þessu sama hefti Ægis segir svo m. a.: „Nú er íslenzki fiskurinn, sem er fallegri en sá norski, að ryðja sér til rúms, bæði í Lissabon og Vigo, og sala okkar verður æ minni. Meðan ég dvaldi þar (þ.e. E. L. yfirfiskimatsm.) heyrði ég oft, að smá- salarnir spurðu eftir íslenzkum fiski og sögðu um leið við kaupmenn: „Ekki hinn ljóta norska fisk, meðan hinn fallegri, ís- lenzki fiskur er á boðstólum". Helgi Guðmundsson, síðar bankastjóri, var lengi fiskifulltrúi á Spáni og gat sér þar hið bezta orð. 1 skýrslum hans er oft að finna ýmsar góðar leiðbeiningar, þar sem hann segir skorinort frá því, sem var að gerast, hvort sem það var til hins betra eða verra. Þrátt fyrir þá staðreynd, sem hér hefur verið getið um, og Norð- mennirnir bera mjög upp í sér, að ísl. fiskurinn sé að útrýma hinum norska af markaðnum, segir Helgi oft frá ýmsum vandkvæðum. í skýrslu sinni í Ægi í febr. 1931 segir hann t. d., að það sé óverjandi að meta þrælsprunginn fisk nr. 1, og eins sé ófyrirgefanlegt að telja skakkt í pakkana, en hvorstveggja þessa hafi hann orðið var. Hann segir auðvitað, að í öllum tilfellum sé þetta óverjandi, og megi ekki koma fyrir, en þegar mark- aðsástandið sé eins og það sé nú orðið, hafi þetta ófyrirsjáanlegar afleiðingar, og skaði meira en nokkurn grunar. Övæntir erfiMeikar. Um 1930 skellur á hin ægilegasta fjár- kreppa, (heimskreppa) sem ekki fór hér hjá garði. Þessi mikli vágestur hafði geigvænlegar afleiðingar gagnvart fisk- veiðum okkar og utanríkisverzlun, en meginhluti hennar byggðist á saltfisk- framleiðslunni. Það aflaðist hér mikið á árinu 1931, en verðfallið og sölutregðan varð svo ægileg, að raunverulega mátti segja, að útvegurinn legðist í rúst. Marg- ir útgerðarmenn töpuðu of fjár, og þeir mestu, sem mestan höfðu aflann, því að nú var verra að eiga mikinn afla en lítinn, svo gífurlegt var verðfallið. Þessarar kreppu og afleiðinga hennar gætti í ís’enzkri útgerð allan þennan ára- tug 1930—1940 markvíslega, og kom þar enn fleira til. Kreppan hafði lamandi á- hrif í þeim löndum, sem kevptu af okkur fiskinn, svo og langvinn borgarastyrjöld í aðalfiskkaupalandinu Spáni. Enn alvar- legri hlutur var svo það, að aflabrögð fóru nú ört minnkandi, en erlendum fiski- skipum fjölgaði á miðunum, en aðstaða þeirra til fiskveiða batnaði með ári hverju sem leið. þar sem þau voru stærri og betur búin en hinn íslenzki floti, sem nú var óðum að ganga úr sér. Garnalt máltæki segir, að sjaldan sé ein báran stök. I viðbót við allt þetta bættist svo það, að nú fóru að berast hingað frá Spáni miklar kvartanir um jarðslaga í fiskinum, bæði brúnan og rauðan. Auk þess hve fiskurinn varð ljót- ur af þessum sökum og óútgengilegur, geymdist hann svo illa, er hann hafði tekið þessa „rauðu hunda“. Þetta var mikið áfall fyrir hið ágæta isl. mat, er hafði unnið sér mikið álit í öllum löndum. Þetta var þó matinu algerlega óviðráðan- legt, því að þótt ekkert sæist á fiskinum, er hann var metinn, gat þetta komið fram í honum á leiðinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.