Ægir

Volume

Ægir - 15.12.1959, Page 165

Ægir - 15.12.1959, Page 165
ÆGIR — AFMÆLISRIT 163 Ólafó afóóon Þátttaka íslands í alþjóðlegri samvinnu á sviði íiskveiða Eitt af sérkennum fiskveiðanna er, að þær eru ekki eins staðbundnar og aðrir atvinnuvegir. Landbúnaður er bundinn við jörðina, skógarhöggið við skóginn, námu- gröfturinn við námuna og mætti svo telja áfram. Fiskveiðarnar á hinn bóginn byggjast á fiskistofnunum í hafinu, sem eru sumir hverjir a. m. k. mjög hreyfan- legir. Meginhluti fiskveiða fer fram eigi all- fjarri ströndum og byggjast á því, að á vissum tímum safnast fiskarnir saman oft í mikilli mergð á landgrunnunum í því skyni að hrygna eða þá í ætisleit. Það liggur því í eðli fiskveiðanna, að fiskimennirnir verða að elta uppi fiski- göngurnar, þar sem þær eru í það og það skipti. Innan fiskveiðilandhelginnar ræð- ur hvert land yfir fiskveiðunum og getur sett þær reglur, sem nauðsynlegar teljast, en slíkar reglur miða að jafnaði að því að vernda fiskistofnana fyrir ofveiði og þar með að tryggja eðlilegan afrakstur af þeim. Landhelgi hinna ýmsu landa er mjög misjafnlega víðáttumikil í þessu tilliti, en hér skal ekki rætt um það atriði. Utan landhelginnar tekur svo við út- hafið, þar sem öllum er frjálst að sigla og stunda veiðar. Ef settar eru reglur um fiskveiðar á því svæði verður það ekki gert öðruvísi en með samkomulagi þeirra þjóða, sem fiskveiðar stunda á hverju svæði. Það er þarna, sem hin alþjóðlega samvinna á sviði fiskveiðanna kemur til. Það er augljóst, að fyrir okkur Islend- ingar er það þýðingarmikið, að samvinna takist um vernd fiskistofnanna utan fisk- veiðilandhelginnar, því að meira eða minna leyti eru það sömu stofnarnir, sem veiðast á báðum svæðunum og sú vernd, sem landhelgin getur veitt kemur því ekki að fullum notum nema einhverjar skorður séu reistar við ofveiði einnig utan land- helginnar. Það er því eðlilegt og sjálfsagt, að íslendingar ekki aðeins taki fullan þátt í slíkri alþjóðlegri samvinnu heldur leggi sig einnig fram til þess að hún megi bera árangur. Ein hin elzta alþjóðastofnun, sem til er starfandi, er Alþjóðahafrannsóknai'áðið (International Council for the Exploration of the Sea). Var það stofnað árið 1902 i Stokkhólmi af löndunum, sem liggja að sjó í Norður- og Vestur-Evrópu. Lengst af hefir stofnunin haft aðsetur í Kaup- mannahöfn og er þar nú. Hlutverk stofn- unarinnar er að vera vettvangur fyrir vís- indamenn aðildarríkjanna á sviði fiski- og hafrannsókna, þar sem þeir geta borið saman bækur sínar og samræmt aðgerðir sínar í rannsóknum á hinum ýmsu haf- svæðum og fiskistofnum. Enda þótt Island gerðist ekki fullgild- ur aðili að Alþjóðahafrannsóknaráðinu fyrr en árið 1937, höfðu íslenzkir fiski- fræðingar tekið þátt í störfum þess áður. Síðan hafa íslenzkir fiskifræðingar jafnan tekið virkan þátt í störfum ráðsins og frá ársbyrjun 1954 hlotnaðist Islandi sá heiður, að dr. Árai Friðriksson var ráðinn framkvæmdastjóri ráðsins og er svo enn. Árið 1937 var haldinn í London al- þjóðafundur um fiskfriðun. Hafði brezka ríkisstjórnin látið undirbúa tillögur að samningi, þar sem sett voru ákvæði um lágmarksmöskvastærð í botnvörpum og dragnótum og lágmarksstærð á fiski, sem landa mætti. Var gengið frá samningi þessum og voru aðilar að honum, að mestu hin sömu lönd og innan Alþjóðahafrann-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.