Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1979, Page 50

Ægir - 01.02.1979, Page 50
Síðasta ár var norskum sjávarútvegi þungt í skauti, en heildaraflinn varð aðeins 2.384.600 tonn á móti 3.217.504 tonnum árið 1977, og er aflarýmunin 25,9% á milli þessara tveggja ára og aflaverðmæti, upp úr sjó, 9,9% lægra. Munar þar mest um, að loðnuveiðarnar brugðust að miklu leyti. Á árinu 1978 veiddust 1.275.000 tonn af loðnu, en 2.137.200 tonn árið áður, og hafa Norðmenn allverulegar áhyggjur af loðnustofninum og hefur hámarksveiði á loðnu fyrir árið 1979 nú verið ákveðið að verði eins 560.000 tonn sem skiptist á milli 400 veiði- skipa. Veiðileyfum til einstakra stærðarflokka á loðnu fyrir árið 1979 nú verið ákveðin að- dæmi má nefna, að skip sem lesta 800 tonn eða meira, fá leyfi til að veiða hámark 2.250 tonn, en það þýðir að stærstu og fullkomnustu nótaskipin geta auð- veldlega tekið þetta aflamagn í tveimur veiðiferðum og þó meira væri. í ár sjá Norðmenn aðeins tvo ljósa punkta, hvað varðar veiðar hinna stóru og full- komnu nótaskipa, en það eru annarsvegar kol- munninn sem er veiddur seinnihluta vetrar og á vorin við Bretland og Færeyjar, en á síðastliðnu ári tóki þeir 117.500 tonn af kolmunna, og hins- vegar loðnuveiðar sumar og haust við Jan Mayen. Eru nú uppi miklar ráðagerðir og viðbúnaður til að standa sem best að vígi, þegar veiðarnar við Jan Mayen geta hugsanlega hafist, og er þegar búið að gera ráðstafanir til að senda þangað full- komin leitarskip, strax og fer að vora. Ýms samtök í sjávarútvegi Noregs hafa ennfremur aukið þrýst- ingin á stjórnvöld til að lýsa sem fyrst yfir 200 mílna efnahagslögsögu umhverfis Jan Mayen, og má búast við að þessi mál skýrist með vorinu, og stjórnin ákveði hvort tímabært sé að ákveða þessa landhelgi, en norsk stjórnvöld halda því fram, að á því sé ekki nokkur vafi, að Noregur hafi fullan rétt til að setja 200 mílna lögsögu umhverfis Jan Mayen. Hvort markalínan eigi að fylgja hinni svokölluðu miðlínu hvað íslandi viðvíkur, eða hvort sérstakar kringumstæður geti réttlætt að fallið verði frá þeirri venju, á eftir að taka ákvörðun um, en eins og sakir standa eiga norsk stjórn- völd í erfiðum samningum við Sovétríkin um hvar setja eigi miðlínuna í Barentshafi og eiga því erfitt með að gefa fordæmi með eftirgjöf eða fráviki frá reglunni í samningum sínum við okkur. Því hefur verið fleygt í norskum fjölmiðlum að undanförnu, að íslendingar gætu átt það til að hóta að reka her NATO úr landi, ef Norðmenn lýsa yfir 200 mílna lögsögu við Jan Mayen, en Norðmenn telja aðstöðu NATO hér á landi mjög mikilvægan hlekk í vörnum sínum, sem og Evrópu. Er þetta skýr vísbending þess, að Norðmenn gera sér vel ljóst, hversu mikið við íslendingar álítum að þarna sé í húfi fyrir okkur og nauðsyn þess, að milli þjóðanna náist samkomulag og náin samvinna um veiðar á sameiginlegum fiskstofnum landanna. Fyrir hendi eru sannanir þess, að sú loðna sem veiddist við Jan Mayen á síðasta ári, hrygni hér við land á vetrarvertíðinni, og liggur því ljóst fyrir að mjög áríðandi er fyrir okkur að ná samkomulagi við Norðmenn um tak- mörkun á veiðum þeirra við Jan Mayen á loðnu, en norski nótaveiðiflotinn er það öflugur í dag að ef honum væri beitt af alefli á miðin við Jan Mayen, gæti svo farið að loðnustofnsins þar biðu sömu örlög og norsk-íslenska síldarstofnsins. Hinn 17. janúar s.l. voru 40 ár liðin frá stofnun Landssambands íslenskra útvegsmanna. Tildrögin að stofnun LÍÚ voru þau, að útgerðarmönnum, sem sátu fund SÍF haustið 1938, þótti orðið aðkallandi að stofna með sér samtök sem gættu hagsmuna þeirra. Kreppan var þá enn í algleymingi og fjár- hagsleg staða útgerðarinnar mjög slæm. Kosin var þriggja manna nefnd til að vinna að stofnun sam- takanna, og var hún skipuð alþingismönnunum Jóhanni Þ. Jósepssyni og Sigurði Kristjánssyni ásamt útgerðarmanninum Elíasi Þorsteinssyni. Að fáum mánuðum liðnum, var stofnfundurinn hald- 94 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.