Ægir - 01.02.1979, Blaðsíða 27
Lýsishersla í 30 ár
Lýsishersluverksmiðjan við Köllunarklett hefur
nu starfað í 30 ár. Verksmiðjan var reist af Lýsis-
samlagi íslenskra botnvörpunga og var Ásgeir
eitinn Þorsteinsson verkfræðingur höfundar þess
iramtaks.
I árslok 1958 keypti nýstofnað hlutafélag, Hydrol
•’ Þessa verksmiðju og hefur rekið hana síðan.
Lrá því Hydrol hf. var stofnað hafa 5-6 menn
starfað að jafnaði við reksturinn, þar af 3 frá
stofnun. Tveir þeirra, Jens Skarphéðinsson og
•s-jartan Waage, hafa starfað við lýsisherslu frá
JJPphafi eða 30 ár og eru hinir ágætustu fagmenn
v°r á sínu sviði framleiðslunnar.
Lýsishersla myndi nánast flokkast undir efna-
j nað. Framleiðslan er fólgin í því að breyta
oðnulýsi eða öðru fisklýsi í matarfeiti. í grófum
rattum má lýsa vinnslunni þannig:
Ohreinsað lýsi, gjarnan loðnulýsi, er flutt að verk-
Sm'ðjunni í tankbílum og dælt inni í geymslu-
tanka hrálýsis sem eru 4 og taka samtals um 1.300
tonn. Or þessum tönkum er lýsinu dælt í verk-
jnnðjuna til forhreinsunar. Þar eru afköstin um 2
°nn á klukkustund, en unnið er með þar til gerðum
skilvindum og íblöndunartækjum sem fella út fríar
fitusýrur og hreinsa burt öll óhreinindi og vatn.
í beinu framhaldi fer lýsið í gegnum bleikingar-
síur og útá 200 tonna geymslutank, þar sem það
bíður næsta stigs framleiðslunnar, herslu.
Herslan fer fram við nokkuð hátt hitastig (185° C)
í þar til gerðum herslukatli. Þar er nikkel dufti og
hreinu vatnsefni hrært saman við lýsið undir þrýst-
ingi. Nikkelinn er hvati til samruna vetnis og lýsis,
en sá samruni er nefndur mettun. Við mettunina
hækkar bræðslumark lýsisins uns náð er því
bræðslumarki sem óskað er, venjulega 36 - 38° C.
Þetta tekur 2-3 tíma og eru 10 tonn hert í einu.
í lokin er harðfeitin, sem lýsið nú heitir, kæld og
síðan síuð til að ná nikkelduftinu úr. Því næst
er harðfeitin bleikt með leir og notuð sitrónusýra
til að fella út snefilefni (málmsölt) sem finnast í
allri feiti.
Lokastig þessarar framleiðslu er hreinsun til að
nema brott lykt og bragð. Er það gert við rúm
200°C við lofttæmi (3-5 mm Hg) og er gufu þrýst
í gegnum harðfeitina í 5 - 6 klukkustundir. Að
þessu loknu er feitin síuð og er nú tilbúin til
afhendingar ýmist á tunnum eða í tankbílum.
ÆGIR — 71