Ægir - 01.02.1979, Blaðsíða 78
Fréttatilkynning
Vegna sérstakra línu- og netasvæða
fyrir Suðvesturlandi og út af Faxaflóa
Sjávarútvegsráðuneytið hefur í dag gefið út reglu-
gerð um sérstök línu- og netasvæði út af Suðvestur-
landi og Faxaflóa, sem gildi tekur 1. febrúar 1979.
Samkvæmt reglugerð þessari eru allar veiðar með
botn- og flotvörpu bannaðar á þremur tilgreindum
svæðum fyrir Suðvesturlandi. Er hér um að ræða
tvö ný svæði og ennfremur stækkun á því línu-
og netasvæði út af Faxaflóa, sem sett var í nóvem-
ber 1978.
Verður hér gerð grein fyrir svæðum þessum:
Á tímabilinu frá 1. febrúar til 31. mars 1979,
eru allar veiðar með botn- og flotvörpu bannaðar á
7 sjómílna breiðu svæði utan við línu, sem dregin er
úr punkti 63°33’7 N, 23°03’0 V, vestur og norður
um í 5 sjómílna fjarlægð frá Geirfugladrang í punkt
64°04’9 N, 23°45’0 V og þaðan í 270° réttvísandi.
Að austan markast svæðið af línu, sem dregin er
213° réttvísandi úr punkti 63°33’7 N, 23°03’0 V.
Á tímabilinu frá 1. febrúar til 15. maí 1979,
eru allar veiðar með botn- og flotvörpu bannaðar
á svæði, sem að sunnan markast af línu, sem
dregin er réttvísandi 270° frá Stafnesvita í punkt
63°58’3 N, 23°40’5 V og þaðan síðan um eftir-
greinda punkta:
A. 64°04’9 N, 23°45’0 V
B. 64°04’9 N, 23°42’0 V
C. 64°20’0 N, 23°42’0 V
og þaðan í 90° réttvísandi.
Á tímabilinu 20. mars til 15. maí 1979, eru
allar veiðar með botn- og flotvörpu bannaðar á
svæði, sem markast af línum, sem dregnar eru á
milli eftirgreindra punkta:
A. 63°00’0 N, 22°00’0 V
B. 63°25’3 N, 22°00’0 V
C. 63°33’7 N, 23°03’0 V
Reglugerð þessi er sett vegna þess, að ráðuneytinu
bárust fjölmargar áskoranir frá sjómönnum og út-
gerðarmönnum, einkum frá Suðurnesjum og
Grindavík, um setningu sérstakra línu- netasvæða á
yfirstandandi vertíð.
Ráðuneytið sendi þessi erindi til umsagnar Fiski-
félags íslands og eru þessi sérstöku línu- og neta-
svæði í samræmi við tillögur stjórnar Fiskifélags
fslands þar um. í tillögum Fiskifélags íslands
segir, að mælt sé með þessu fyrirkomulagi til reynslu
og mun sjávarútvegsráðuneytið fylgjast með,
hvernig þessi sérstöku svæði verði nýtt af línu-
og netabátum.
Sjávarútvegsráðuneytið,
24. janúar 1979.
Hér að neðan er kort
af svæðinu.
122 — ÆGIR