Ægir - 01.02.1979, Blaðsíða 29
Pétur Másson:
Utfærsla í 200 mílur
Efnahagslegar og markaðslegar afleiðingar hennar á Norður-Atlantshafi
I. Inngangur
Þróun sú sem orðið
hefur í fiskveiðimálum
heimsins síðustu árin hefur
valdið vísindamönnum á
hinum ýmsu sviðum, svo
sem næringarfræðingum,
líffræðingum, og hagfræð-
ingum, margvíslegum
áhyggjum.
Þó að fiskveiðar vegi
heldur létt á vogarskál-
unum í fæðuöflun mann-
kynsins eins og er, gefur hagnýting aflans hingað til
°8 möguleikar þeir sem skyldar atvinnugreinar, svo
Seni fiskrækt í fersku og söltu vatni virðast búa
mikilsverðar ábendingar fyrir framtíðina. Ný-
e8>r spádómar Matvælastofnunar Sameinuðu
Pjóðanna (F.A.O.) gefa til kynna að bein neysla
lsks í heiminum jafngildi um 14% af heildar-
neyslu eggjahvítuefna úr dýraríkinu. Þó að þetta
Se tiltölulega lítill hluti heildarframleiðslu eggja-
nvítuefna, er það mikilvæg uppspretta fæðu stórra
°8 þéttbýlla svæða eins og t.d. Japans, Vestur-
Vrópu og austurstrandar Norður-Ameríku. Til
v'ðbótar þessum 14% koma svo önnur 10-11% frá
anddýrum sem eru fóðruð á fiskmjöli og lýsi.
|yfikilvægi fisks er ennfremur undirstrikað með
Peirri trú manna, að eggjahvítuefni unnið úr fiski
Se kostaríkara en það sem unnið er annarsstaðar
*rá dýraríkinu.
^ árunum frá 1950 hefur fiskneysla farið
sröðugt vaxandi, eða úr 8 kg. á mann á ári að
H^ðaltali í heiminum í u.þ.b. 19 kg. á árunum
um 0g eftjr j97Q Á sama tímabili hefur afli
aukist sem svarar til 5% á ári, úr 21 í 70 millj.
esla- Er það meiri aukning en íjölgun mannkynsins
nemur á sama tíma. Gefur þetta tilefni til hug-
e'ðinga um hvort hafsvæðin muni í framtiðinni
Meðfylgjandi grein er bvggð áprófritgerðhöfundar
til B.Sc. - prófs í stjórnunarfrœðum (Management
Sciences) við tœkniháskólann í Manchester, Eng-
landi, sumarið 1978. Hún birtist hér töluvert stytt,
bœði í máli og að töflum. í greininni er einkum
fjallað um lönd, sem liggja að Norður-Atlantshafi,
og útfœrslu strandríkja á því svæði í 200 mílur.
geta fullnægt stærri hluta matarþarfarinnar (sem
F.A.O. áleit á Matvælaráðstefnunni 1974 að mundi
aukast um 60% á komandi áratug). Slíkar hug-
leiðingar virðast raunhæfar þegar tekið er tillit til
þess að hafsvæði þekja um þrjá fjórðu hluta
jarðarinnar og ef tillit er tekið til, að sum þeirra
eru enn lítt könnuð.
Tafla I.
Skipting heimsaflans eftir verkunaraðferðum
(í miUjónum tonna).
Heildarafli .., 1970 1971 1972 197i 1974 1975
. 70,0 70,9 66,2 66,8 70,5 69,7
Til manneldis 43,5 45,4 45,8 48,2 49,2 48,7
ferskur 19,5 20,1 19,8 20,5 21,3 20,7
frosinn 9,7 10,7 11,2 12,5 12,9 12,7
saltað, reykt
o.s.frv. 8,1 8,0 8,0 8,1 8,1 8,1
niðursoðinn 6,2 6,6 6,8 7,1 7,2 7,2
Til bræðslu 26,5 25,5 20,4 18,6 21,0 21,0
Bein neysla í % af heildarafla 62.1 64,0 69,2 72,2 70,2 69,9
Þrátt fyrir stöðuga fólksfjölgun i heiminum og
aukna eftirspurn, hefur framboð haldist nokkuð
stöðugt um 70 milljón lestir siðan á fyrstu
ÆGIR — 73