Ægir - 01.02.1979, Blaðsíða 70
Skipið er búið tveimur rafdrifnum hliðarskrúfum
frá Ulstein.
Tœknilegar upplýsingar (hvor skrúfa).
Gerð ...............
Afl ................
Hliðarkraftur ......
Blaðafjöldi/þvermál .
Niðurgírun .........
Snúningshraði ......
Rafmótor ...........
90 TV
450 hö
5400 kp
4/1280 mm
3. 74:1.
390 sn/mín
Nebb, 450 hö 1460 sn/mín
Ein skilvinda frá Alfa Laval, gerð M AB 104 B-24,
er í skipinu, notuð til hreinsunar á brennsluolíu,
en fyrir smurolíu er CJC finfilter. Ræsiloftþjöppur
eru tvær frá Espholin, gerð H65, afköst 30 m3/klst
við 30 kp/cm2 þrýsting hvor þjappa. Fyrir véla-
rúm og loftnotkun véla eru tveir rafdrifnir blásarar
frá Nordisk Ventilator af gerð ADA 710 F4.
Rafkerfi skipsins er 380 V, 50 Hz, riðstraumur
fyrir rafmótora og meiri háttar tæki, en 220 V,
50 Hz, fyrir lýsingu o.fl. Fyrir 220 V kerfið eru
tveir 40 KVA spennar 380/220V. Samkeyrslubún-
aður er fyrir rafala. í skipinu er 80 A, 3x380 V,
og 105 A, 3x220 V landtenging.
Austurkilja er í skipinu af gerð HDW. Tank-
mælikerfi er frá Peilo Teknikk A/S, gerð Sound-
fast, aflestur í vélgæzluklefa. Fyrir vélarúm er
Halon 1301 slökkvikerfi. Ferskvatnsframleiðslu-
tæki er frá Atlas af gerðinni AFGU 1, afköst
3 t á sólarhring.
Upphitun í íbúðum er með heitu lofti, en í loft-
rás innblásturs til íbúða er komið fyrir vatns-
hitaelementi, sem fær varma frá kælivatni aðal-
vélar og rafmagnstúbu til vara og í höfn, en auk
þess eru rafmagnsofnar á nokkrum stöðum. Loft-
ræsting fyrir íbúðir er með rafdrifnum blásara frá
Nordisk Ventilator, gerð CNB-400/R, og fyrir
eldhús og snyrtiklefa er sogblásari einnig frá
Nordisk Ventilator. í skipinu er eitt vatnsþrýsti-
kerfi frá SDR Hojrup Maskinfabrikk fyrir fersk-
vatn með 300 1 þrýstigeymi.
Vökvaþrýstikerfi fyrir vindur, kraftblakkarbún-
að og fiskidælur eru þrjú, á þremur stöðum í skip-
inu. í stýrisvélarrúmi er eitt kerfi fyrir togvindur
og flotvörpuvindu með tveimur Vickers 35V38A
einföldum skófludælum, drifnar af 71 KW, 1460
sn/mín Asea rafmótorum, og tveimur Vickers
45V60A, einföldum skófludælum, drifnar af 85
KW, 1460 sn/mín Asea rafmótorum, auk þess eru
tvær rafdrifnar dælur fyrir fjarstýringu og bremsur
á togvindum. í klefa framarlega á neðra þilfari
er kerfi fyrir snurpivindu, hjálparvindu, fiski-
dælur og akkerisvindu með fjórum rafdrifnum
dælum, samsvarandi og í stýrisvélarrúmi. í verk-
stæði er kerfi fyrir kraftblökk, færslublakkir,
brjóstlínuvindu og bómukrana með einni Vickers
35V35A einfaldri skófludælu, drifin af 63 KW,
1460 sn/mín Asea rafmótor, auk minni dælu,
Vickers 25V17A, sem tengist inn á þetta kerfi-
Fyrir losunarkrana eru þrjú kerfi; tvö fyrir Hiab
krana, ein vökvaþrýstidæla fyrir hvort kerfi, drifin
af 14 KW rafmótor, og eitt fyrir Thrige krana, tvær
vökvaþrýstidælur, drifnar af 18 KW rafmótorum-
Stýrisvél er búin tveimur ábyggðum rafdrifnum
vökvaþrýstidælum.
Fyrir matvælageymslur eru tvær rafdrifnar kæli-
þjöppur (önnur til vara) frá Hans Goeldner af gerð
103 W2, kælimiðill Freon 502.
fbúðir;
I íbúðarými á neðra þilfari er fremst s.b.-megin
verkstæði, en þar fyrir aftan fjórir 2ja manna
klefar. B.b.-megin er fremst setustofa, en þar fyrir
aftan þrír eins-manns klefar, þá einn 2ja manna
klefi og aftast einn eins-manns klefi. Fyrir miðju
er vélareisn, tveir salernisklefar, þvottaherbergi
með tveimur sturtum og auk þess gufubaðstofa.
í íbúðarými á efra þilfari er fremst borðsalur,
en þar fyrir aftan, b.b.-megin, eldhús og matvæla-
geymslur aftast, en þær skiptast í ókælda geymslu.
kæli- og frystigeymslu. í þessu íbúðarými er auk
þess sjúkraklefi, hlífðarfatageymsla, tveir salernis-
klefar, þurkklefi og vélareisn.
í íbúðarými á bátaþilfari eru þrír íbúðaklefar.
sem eru fyrir skipstjóra, 1. vélstjóra og I. stýri*
mann, og eru allir þessir klefar tvískiptir, þ e-
svefnklefi og setustofa. Auk þess er snyrting með
salerni og sturtu fyrir þessa hæð, en önnur rúm
eru geymslur.
í brú er stýrishús fremst og í s.b.-hluta, loft'
skeytaklefi b.b.-megin og vindustjórnklefi aftas1
samtengdur stýrishúsi. Auk þess er tækjaklefn
loftræstingarklefi og skorsteinshús á þessari hæð-
Útveggir og loft í íbúðum eru einangraðir með
steinull og glerull og klætt er með plasthúðuðum
spónaplötum.
Fiskilestar:
Lestar undir neðra þilfari eru þrjár og er hvert*
lest skipt með tveimur langskipsþilum úr stáh 1
114 — ÆGIR