Ægir - 01.02.1979, Blaðsíða 67
NÝ FISKISKIP
Eldborg HF 13
A nýliðnu ári bættist nýtt nóta- og flotvörpu-
skip viðfiskiskipastól landsmanna, Eldborg HF13,
sem kom til heimahafnar sinnar, Hafnarfjarðar,
Þann 30. desember. Skip þetta er smíðanúmer 136
Þjá Fartygsentreprenader AB í LJddevalla í Sví-
Þjóð, sem sá um smíðina. Smíði skipsins var hins
vegar með þeim hœtti að smíði á skipsskrokk og
yf'fbyggiugufórfram í Svíþjóð hjá Karlstadverken,
en siðan var skipið dregið til Danmerkur, þar sem
srniðinni var lokið, þ.e. smíði innréttinga, niður-
setning á véla- og tækjabúnaði og annar frágangur.
f’að var skipsmíðastöðin 0rskovs Staalskipsværft í
f redrikshavn, sem annaðist þennan verkþátt sem
e>er númer 105 hjá stöðinni. í Fredrikshavn skeði
Það óhapp að skipiðfór á hliðina rétt fyrir væntan-
lega afhendingu og seinkaði það afhendingu um
runia tvo mánuði, þar sem taka þurfti vélar skip-
sips upp. Þess má geta að systurskipin Bjarni
Ólafsson AK og Grindvíkingur GK eru byggð
Þjá sömu aðilum.
Eldborg HF er í eigu samnefnds hlutafélags í
Eafnarfirði. Skipstjórar á Eldborgu eru Bjarni
óunnarsson og Birgir Erlendsson og 1. vélstjóri
Sigtryggur Ingi Jóhannsson. Framkvœmdastjóri út-
8erðarinnar er Þórður Helgason.
Eldborg HF er stœrsta nótaveiðiskip íslendinga
°8 jafnframt stærsta fiskiskip íslendinga miðað við
rúttólestatölu (mœl.þilfar: efra þilfar) og einnig
efsærými eða burðargeta er lögð til grundvallar.
ms vegar ef gengið er út frá umfangi bols (marg-
V' a^aúnála) eru nótaveiðiskipin Sigurður RE og
'kingur AK, svo og stóru Spánar-togararnir,
aeldur stœrri.
Skip þetta er frábrugðið öðrum íslenzkum nóta-
Xe'ðiskipum, hvað varðar aðalvélar- og aflkerfi,
en i skipinu eru tvœr aðalvélar, sem tengjast einni
skrúfu. Allur vélrœnn búnaður áþilfarisem notaður
er við veiðar o.fi., svo sem vindur, kraftblakkir,
er raf/vökvaknúinn ogfær afifrárafal, sem knúinn
er af annarri aðalvélinni. f skipinu eru tvö ný tæki,
sem ekki hafa áður verið sett í íslenzk fiskiskip,
en það eru miðbylgju- og stuttbylgjustöðfrá Sailor
og ný gerð af Koden miðunarstöð.
Almenn lýsing:
Skipið er byggt úr stáli skv. reglum og undir
eftirliti Det Norske Veritas í flokki>í<lAl, Deep
Sea Fishing, S, Ice C, >í<MV. Skipið er tveggja
þilfara nótvaveiðiskip, með búnað til flotvörpu-
veiða.
Mesta lengd .. 59.00 m
Lengd milli lóðlina .. 51.00 m
Breidd .. 12.00 m
Dýpt að efra þilfari .. 7.85 m
Dýpt að neðra þilfari .. 5.60 m
Eiginþyngd .. 1055 t
Særými (djúprista 6.50 m) .. 2900 t
Burðargeta (djúprista 6.50 m) .. .. 1845 t
Lestarými (undirlest) .. 1257 m3
Lestarými (milliþilfarslest) .. 428 m3
Brennsluolíugeymar .. 203 m3
Sjókjölfestugeymar .. 308 m3
Ferskvatnsgeymar 26 m3
Andveltigeymir 61 m3
Ganghraði (reynslusigling) 14.1 hn
Rúmlestatala .. 1314 brl
Skipaskrárnúmer .. 1525
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með sjö
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hágeyma
fyrir sjókjölfestu í síðum og asdik- og hliðar-
skrúfurými fyrir miðju; þrjár fiskilestar með botn-
geymum fyrir brennsluolíu og sjókjölfestu; vélarúm
með síðugeymum fyrir brennsluolíu og úrgangs-
olíu fremst; geyma yfir stefnisröri fyrir brennslu-
olíu og aftast skutgeyma fyrir ferskvatn. Keðju-
kassar eru fremst í hágeymum. Að framan liggja
hliðarskrúfugöng í gegnum hágeymi fremst en að
aftan liggja göng aftast í vélarúmi. Undir lestum
eru tveir þrískiptir botngeymar, fremri geymirinn
og miðhólf aftari geymisins eru fyrir brennslu-
olíu og síðuhólf aftari geymis fyrir sjókjölfestu.
Vélarúm er á tveimur hæðum að hluta, þ.e. pallar
í síðum. B.b.-megin í vélarúmi er vélgæzluklefi.
ÆGIR — 111