Ægir - 01.08.1984, Side 46
skreið. Gerðar voru tilraunir með að vélslægja kol-
munna með danskri vél. Slægingin tókst vel og var
nýtingin 83% og 90-95% voru fullnægjandi til
skreiðarframleiðslu, þ.e. án innyflaleifa. Þurrktími
fyrir slægðan kolmunna mældist um 80 klst, en fyrir
óslægðan um 140 klst og nýting um 23% (1979).
Næsta ár var haldið áfram rannsóknum á nýtingu
kolmunna. Var þá lögð meiri áhersla á athuganir á
ýmsum gerðum slægingarvéla. Auk þess var reynt
að vekja áhuga skreiðarframleiðenda á þurrkun-
inni. Nokkur fyrirtæki þurrkuðu kolmunna á árinu,
en áður höfðu 2 fyrirtæki gert tilraunir með það
1976. Birtir voru framleiðslu-kostnaðarreikningar
fyrir kolmunnaskreið og voru niðurstöður mjög
jákvæðar í þeim tilvikum sem tiltækt var heitt vatn.
Aðalniðurstöður þurrkunarrannsókna voru þessar:
Kolmunnann má þurrka óslægðan ef fitumagn er
innan við 2% en ekki var talið ráðlegt að framleiða
slíka vöru.
Best er að nota slægingarvélar, sem geta hvort
heldur sem er slægt og hausað eða látið hausinn vera
á, allt eftir kröfum markaðarins. Sjö gerðir slæg-
ingarvéla voru prófaðar og reyndust allar nothæfar.
Nýtingartölur fyrir slægðan og hausaðan fisk voru
60-66% en 82-90% fyrir slægðan fisk með haus.
Kosturinn við að hausa fiskinn er ekki síst fólginn í
því að við hausun er skorið á allar taugar, sem halda
slógi og lifur, og fiskurinn hreinsast alveg.
Hægt er að auka afköst venjulegra saltfiskþurrk-
ara með því að taka upp eftirþurrkun í líkingu við
súgþurrkun á heyi, en sá búnaður kostar aðeins
helming þess, sem forþurrkarinn kostar nýr.
Mögulegt er að nota bandaþurrkara fyrir hvers
konar smáfiskþurrkun og hausaþurrkun, en hann
sparar mikið vinnuafl.
Nýting við þurrkun fer eftir því hvernig fiskurinn
er búinn undir þurrkun og hvert lokavatnsinni-
haldið er. Nýting var þessi: slægður og hausaður
15%, slægður með haus 19%, óslægður 23%.
Á árinu voru framkvæmdar nokkrar athuganir á
þurrkskilyrðum fyrir nokkrar sjávarafurðir. Einnig
var hannaður nýr búnaður fyrir fiskþurrkun. Þurrk-
tími fyrir loðnu var athugaður og reyndist vera
um 70 klst. Það kom einnig í ljós, að loðna sem var
þvegin fyrir þurrkun klesstist ekki eins saman og
loðna, sem sett var í þurrkklefann óþvegin.
Hönnuð voru fimm þurrkkerfi fyrir skreiðar-
framleiðendur og var búnaðurinn ætlaður fyrir
hausa- og smáfiskþurrkun. Eitt kerfið var f®rl'
banda-þurrkari, sem má nota jafnt fyrir hausa setn
smáfisk og hugsaður sem forþurrkari. Forþurrkun
á hausum tekur um 30 klst og eftirþurrkun um 60
klst. Fullkominn stjórnbúnaður er á þurrkklefa11'
um, þannig að hægt er að stýra lofthringstreymi eft,r
hitastigi og loftraka. Þurrkloftið er hitað upp með
hverahita og er öll orka þurrkklefans innlenO
(1980). Næsta ár voru hönnuð nokkur fleiri kerfi
fyrir inniþurrkun á hausum og eftirþurrkun á skreiO
(1981). Þá var og haldið áfram rannsóknum á sjálu1
þurrkuninni bæði í þurrkklefa Rannsóknastofnun-
arinnar og á hjöllum. Fylgst var með þyngdaf'’
efna- og örverubreytingum í framleiðslu á skreið og
athuguð áhrif hinna mismunandi þurrkskilyrða a
þurrkhraða og gæði skreiðarinnar. Fylgst var með
þurrkun á kolmunna í Þörungavinnslunni og gerðar
athuganir á hinum ýmsu vinnsluþáttum. Tekin vorU
sýni á hinum mismunandi þrepum þurrkunarinnaf
og þau rannsökuð. Framhaldsrannsóknir voru
gerðar á þurrkun þorskhausa og var fylgst með
efna- og gerlafræðilegum breytingum í þurrkunaf'
ferlinum bæði úti og inni. Gerðar voru mismunanð'
aðgerðir á þorskhausunum til þess að flýta fyr,r
þurrkuninni (1981).
Árið 1981 vaknaði mikill áhugi á að nýta kol'
munnann í marning og flakavinnslu, enda fleSt
loðnuskip verkefnalítil vegna hruns loðnustofnsins
Færeyingar voru þegar farnir að nýta kolmunnan11
þannig og notuðu þá reynslu sem fékkst í sal11
norræna verkefninu. Sérfræðingur stofnunarinnar
dvaldist um vikutíma um borð í skipi sem veid
kolmunna og vann hann um borð. Gerðar vorultar
legar mælingar á vinnslurásunum og fengust þann>!
gagnlegar upplýsingar um nýtingu og afköst vinnsk1
véla. Eftir ferðina voru gerðar áætlanir og ðre-'.
ingatillögur fyrir íslensk loðnuskip. Ákveðið var 3
tveimur skipum yrði breytt þannig að hægt væö a
vinna kolmunna um borð. Tæknideild stofnunar
innar tók að sér að sjá um skipulagningu vinnsl11
dekks annars skipsins. Það stundaði kolmunna
veiðar um nokkurra mánaða skeið og framlem
flök. Áætlanir munu yfirleitt hafa staðist vel, nema
að veður hamlaði veiðum verulega (1982). Stofnirl11
brást 1983 þannig að full reynsla er ekki komiu J
markaðinn en afurðin líkaði mjög vel. Kolmunm1
vinnsla til manneldis kemur til með að eiga bjarU'
framtíð fyrir sér ef rétt er á málum haldið.
430-ÆGIR