Ægir - 01.10.1993, Blaðsíða 21
Eyðingin hljóða
Gott dæmi um bát sem hefði mátt
bjarga er gamall árabátur er liggur við
fjöruna í Skógarnesi á sunnanverðu
Snæfellsnesi. Báturinn er með klass-
lsku breiðfirsku bátalagi, smíðaður í
Olafsvík um aldamótin 1900 og var
aöallega gerður út til selveiða frá Snæ-
fellsnesi. Báturinn var í notkun allt
frarn til ársins 1960 er honum var
^agt. Til er mynd af bátnum, er Þórður
Þórðarson í Ólafsvík tók í júlí 1968,
°§ sýnir hún mjög heillegan og falleg-
an árabát svartan og hvítan á lit. Er
safnvörður Sjóminjasafns íslands var
a ferðalagi um Snæfellsnes í júlí síð-
astliðnum þá skoðaði hann þennan
^át- Sú mynd sem tekin var af þessum
Sarna bát nú 25 árum seinna sýnir að-
eins bátsflak og mjög erfitt var að gera
Ser grein fyrir lögun hans og stærð.
ketta dæmi er eflaust bara eitt af all-
mörgum og sýnir hve mikið af
hát •
“rarmnjum fer forgörðum ef ekkert
er að gert til þess að varðveita þær. □
Flak af gömlum árabát er smíðaður var í
afsvík um 1900. Báturinn liggur hjá
Syðra-Skógamesi. Efri myndin er frá því í
luh 1968 og þá er báturinn heillegur.
^eðri myndin var tekin í júií sl. og sýnir
hvemig tíminn hefur leikið þennan bát.
REYTINGUR
Stálskip hf. hœtta rekstri ísfisktogara
Stálskip hf. í Hafnarfirði gekk nýlega frá samningi
Um kaup á nýjum frystitogara sem nú er í smíðum á
sPáni. Fyrirtækið mun hætta útgerð ísfisktogara. Ein
af ástæðum þess er sú að nú er ekki sami grundvöllur
°§ áður fyrir því að sigla með aflann og selja hann á
erlendum mörkuðum. Guðrún Lárusdóttir útgerðar-
maður segir: „Bæði er að við fáum svo fáar siglingar
og einnig hitt að markaðurinn í Þýskalandi fyrir ufsa
og þá einkum karfa er alltaf að verða verri og verri og
nú er svo komið að það borgar sig varla að sigla með
aflann. Mér finnst eiginlega að grundvöllurinn sé
brostinn undan þessum rekstri og þá ekki síst vegna
þess að Færeyingarnir eru langleiðina búnir að eyði-
leggja karfaflakamarkaðinn með því að moka inn á
markaðinn ódýrum flökum sem þeir veiða í okkar
eigin landhelgi, á landhelgismörkunum og á gráa
svæðinu við Hvalbak. Þetta er alveg forkastanlegt,"
(Útvegurinn, fréttabréf LÍÚ)
ÆGIR OKTÓBER 1993 43 1