Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1993, Blaðsíða 26

Ægir - 01.10.1993, Blaðsíða 26
Gísli Svan Einarsson útgerðarstjóri Fiskiðjunnar- Skagfirðings hf.: „Allurverð- ur þessi árangur í askana lát- inn og það hefur áreiðanlega aldrei verið þýðingarmeira en einmitt nú að ná sem mestu út úr minnkandi afla." „Raunverulegt valdaframsal gefar starfsmanni vald til þess að vinna það verk sem hann er ábyrgur fyrir. Það er ekki hœgt að framselja ábyrgð nema menn séu tilbúnir að framselja vald." Aukiö upplýsingastreymi er forsenda „Grundvallarforsenda þess aö auka gæðin er að auka upplýsingastreymi. Sem dæmi má taka að ef verkstjórarn- ir eða framleiðslustjórinn vita ekki ná- kvæmlega hver samsetning aflans er þegar togararnir leggjast að bryggju er ekki hægt að búast við að þeir taki réttar ákvarðanir um í hvernig pakkn- ingar eigi að vinna hráefnið. Verkefni okkar var að sameina alla starfsmenn fyrirtækisins um eina allsherjar gæða- hugsun." Námskeið fyrir áhafnir togaranna Einn þáttur í áætluninni um aukin gæði voru námskeið sem haldin voru fyrir áhafnir togara fyrirtækisins. Þar var fiskinum fylgt eftir frá því hann kom í veiðarfæriö og þar til hann var kominn á disk neytandans. Einnig voru teknir fyrir þættir eins og sam- skipti og samstarf um borð sem ef til vill má segja að snerti fiskinn aðeins óbeint. Á námskeiðunum var farið yfir meðferð fisks og hvernig best væri unnt að tryggja gæði hans. Kastljós- inu var beint að helstu áhættuþáttum, svo sem aðgerð, þvotti og frágangi 1 kassa. Námskeiðinu var skipt í tvennt og stóð fyrri hlutinn í tvo daga. I lok síðari dags var þátttakendum skipt 1 hópa og hópum úthlutaö verkefnum- Ómetanlegur gagnabanki Sjómennirnir fengu um það bil mánuð til þess að vinna að verkefn- unum og að honum loknum komu þeir saman á ný og kynnti hver hópur niðurstöður sínar. Áhafnirnar unnu síðan saman við að móta heildarnið- urstöður. „ÖIl þessi vinna var síðan tekin saman og fjölrituð," segir Gísli Svan. „Þetta fjölrit hefur reynst okkur öllum ómetanlegt og hinn besti gagnabanki sem hefur varðað leið okkar til aukinna gæða." Sjómennirnir ánœgðir „Sjómennirnir voru mjög ánægðn með námskeiðið. í fyrstunni töldu þeir sig ekkert hafa þangað að sækja og ólíklegt að eitthvað nýtt kæmi þar fram. Eftir á töldu þeir sig hafa haft mikið gagn af námskeiðinu og þó að þeir hefðu gert að fiski í tugi ára þa hefðu ýmsir þættir komið þeim a óvart. Eins og sést af niðurstöðum verkefnanna lögðu þeir mikla vinnu i þetta og skiluðu mjög merkileguiu niðurstöðum." Samráðs- og upplýsingafundir Annar þáttur gæðastjórnunarinnai eru reglulegir samráðs- og upplýsing3' fundir sem haldnir eru með fulltrúum hvers togara fyrir sig. Þeir sem sitja fundina eru skipstjóri, yfirvélstjorn stýrimaður, trúnaðarmaður áhafnar, framkvæmdastjóri, fjármálastjóri og útgerðarstjóri. Á fundunum er fariö yfir nýjustu tölur um framlegð, rætt um það sem vel hefur gengið og þaö 436 ÆGIR OKTÓBER 1993

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.