Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1993, Blaðsíða 38

Ægir - 01.10.1993, Blaðsíða 38
milljónir tonna hefur hruniö um allt norðanvert Atlantshaf á síðustu fimm árum og gefur nú aðeins af sér 1,3 milljónir tonna. Fyrstu merki um við- reisn stofnsins komu fram í Barents- hafi árið 1991, en að líkindum verður heildarafli Atlantshafsþorsks í því lág- marki sem hann náði árið 1991 a.m.k. til 1994. Undirritaður þekkir ekki náið til þeirra fisktegunda sem heyra undir tegundina „karpar", en svo virðist sem hér sé um fisktegundir að ræða sem vinsælar eru í fiskeldi austur í Asíu. Graskarpi og karpi eru meðal tegunda sem sýna hvað mesta og stöðugasta aukningu í afla meðal þeirra tegunda sem FAO flokkar sem ferskvatnsfiska sem veiðast í ám og vötnum Asíu. Þannig hefur t.d. afli af graskarpa í Asíu aukist um 134% á fimm árum, eða úr 450 þúsund tonnum í 1.060 þúsund tonn. FAO gerir ekki skýran greinarmun á eldisfiski og öðrum afla, en hér er vafalaust um einhverskonar eldi að ræða. Það er rétt að bæta því við hér í um- fjöllun um helstu fisktegundir heims- ins að nýjar tegundir eru óðum að skipa sér inn á lista FAO yfir 70 mest veiddu fisktegundir heimsins. Þar er um að ræða tegundir sem nú eru aldar í vaxandi mæli í kvíum og tjörnum. Mest ber á ýmsum tegundum rækju og skelfisks. íslendingum þykir vafalaust forvitnilegt að meðal nýrra tegunda á listanum er gamalkunnur matfiskur ís- lendinga, Atlantshafslax. „Veiði" Atl- antshafslax var 78.446 tonn árið 1987, en „veiðin" hafði aukist í 227.523 tonn 1991. Önnur tegund sem nú er í harðri samkeppni við skylda íslenska tegund, þvert ofan í fyrri spár, er risa- tígrisrækja sem að mestu kemur frá eldi austur í Asíu. Af risatígrisrækju „aflaðist" 127.137 tonn árið 1987, en „aflinn" var kominn í 213.219 tonn 1991. □ REYTINGUR REYTINGUR Liða- og vöðvasjúkdómar tíðir hjá sœnskum fiskverkakonum Sænsk rannsókn leiðir í ljós að tíðni liða- og vöðvasjúkdóma eru þrisvar til fjórum sinnum meiri hjá sænskum fiskverkakonum en konum í öðrum starfsgreinum. Ástæða þessa er einkum talin vera einhæfni verkanna og skortur á fjölbreytni í hreyfingu. Efna- hagsaðgerðir stjórnvalda, sem meðal annars hafa falist í lækkuðum sjúkralaunum og fækkun veikindadaga, hafa komið illa niður a láglaunakonum í sænskum sjávarútvegi þar sem margar þeirra búa við erfiðan fjárhag og hafa ekki efni á að vera frá vinnu vegna veikinda. .. . (Yrkesfiskaren) Fiskur einu sinni í viku Þó að Dönum þyki að eigin sögn fiskur góður borða fæstir Dan- ir fisk oftar en einu sinni í viku. Einungis á fjórða hverju dönsku heimili er fiskur á borðum þrisvar til fjórum sinnum í viku og er þá „söndagsfrokosten" með síld og snafs meðtalinn. Helstu ástæð- urnar sem Danir nefna fyrir því að borða ekki fisk eru þessar: Hann er of dýr, einungis fáar tegundir falla að srnekk neytenda, það eru of mörg bein í fiskinum, aðrir í fjölskyldunni vilja ekki fisk, það er of langt til fisksalans. Um það bil 60 af hundraði Dana kaupa fisk- inn í fiskbúðum, hinir 40 af hundraði kaupa hann í stórmörkuð- um' (Havfiskeren) Túristar ógna sjóvarútveginum Síaukinn ferðamannastraumur til Norður-Noregs á síðustu árum ógnar nú hagsmunum sjávarútvegs, einkum í Lófóten. Skýr- ingin er sú að skipa- og ferjusamgöngur eru í síauknum mæh sniðnar að þörfum ferðamanna. Viðkomustaðir eru valdir meö hliðsjón af áhuga ferðamannanna. Vegna þessa hefur flutningur a sjávarafurðum frá sjávarplássum setið á hakanum og hafa frani- leiðendur lent í hinum mestu erfiðleikum með að koma frá sér vörunni. (Fiskaren) 448 ÆGIR OKTÓBER 1993

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.