Ægir - 01.10.1993, Blaðsíða 17
Skuldir aukast -
eigiö fé minnkar
Tafla 2 sýnir eignir og skuldir sjávarút-
vegsins í heild frá árinu 1986 til 1992
ásamt eigin fé. Miöað við fast verðlag
hefir eiginfjárhlutfall greinarinnar ekki
verib minna en í árslok 1992 frá því fyrir
árið 1986 eða 24%, hafbi lækkað úr
30,3% frá árinu áður. Þrátt fyrir verulega
fjárfestingu árin 1991 og 1992 er um litla
hókhaldslega eignaaukningu ab ræða en
á sama tíma aukast skuldir um tæplega
níu og hálfan milljarb króna á hlaupandi
verblagi og eigib fé lækkar um 8,7 millj-
arba króna á verblagi í árslok 1992.
Raunvextir hœkka á
innlendum lánum
Sjávarútvegurinn nýtur góbs af því að
skulda hlutfallslega mikiö í gengistryggð-
um lánum þar eb raunvextir gengis-
tryggbra lána hafa almennt verib mun
t®gri en vextir meö innlendum kjörum.
Raunvextir af lánum bankakerfis, fjárfest-
trrgarlánasjóba og endurlánuðu erlendu
lánsfé eru taldir hafa verib um 6% áriö
1992 og ekki verið veruleg breyting á
þeim athugunartímabilið frá árinu 1986.
haö sem einkum vekur athygli er hin
mikla hækkun raunvaxta óverötryggðra
'nnlendra lána, sem veröur á milli áranna
1987 og 1988 og hefir haldist síban að
mestu leyti. í heild eru raunvextir sjávar-
útvegsins taldir hafa veriö um 5 milljarð-
ar króna þegar teknar eru allar skuldir
§reinarinnar þar sem nokkur hluti þeirra
skulda, sem er utan lánakerfisins, er
vaxtalaus. Erlendir raunvextir eru hér
metnir sem erlendir vextir umfram er-
iendar verðbreytingar. Þar sem verb sjáv-
arafuröa hefir ekki fylgt almennri er-
lendri verblagsþróun, jafnvel farið lækk-
andi, má búast vib ab raunvextir á grund-
velli verbs sjávarafurba séu mun hærri en
Vextir reiknaðir á grundvelli almennra er-
'endra verbbreytinga.
Mynd 1
Lán til sjávarútvegs frá bönkum, fjárfestingarlánasjóóum og
Atvinnutryggingarsjóði á föstu verðlagi ásamt erlendum
lántökum
1977
1980
1983
1986
1989
1992
□ Erlent gengistryggt
Innlent verðtryggt
Mynd 2
Hlutfallsleg skipting lána sjávarútvegs árin 1977-1992
1977
1980
1983
1986
1989
1992
Erlend gengistryggð □ Innlend verðtryggð □ Innlend óverðtryggð
Mynd 3
Raunvextir af lánum til sjávarútvegs
Árlegir og þriggja ára meðaltöl
ÆGIR OKTÓBER 1993 427