Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Page 20

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Page 20
12 Tímarit lögfrieSinga áður var. Lítil ástæða virðist vera til þess, að láta föður- eða móðursystkin látins maka eða bróður eða systur- börn hans takmarka erfðarétt maka. Kjörbörn koma víst ekki hér til greina. C. Bréferfð. Svo hefur sú erfð verið nefnd, sem á stoð sína í yfirlýsingu arfleifanda, sem jafnan skal vera bréfuð. Voru allrækileg fyrirmæli um þessa erfðategund í til- skipun 25. sept. 1850, svo sem kunnugt er. Nú eru fyrir- mælin um þetta efni í III. kafla inna nýju erfðalaga. Sá, sem hvorki á maka né niðja — en þar til teljast víst kjör- börn og niðjar þeirra, sem í 18. gr. sbr. 3. og 6. og 7. gr. laganna, eru settir á bekk með niðjum arfleifanda — má ráðstafa öllum eignum sínum eftir sinn dag með erfða- gerningi. En ef hann á niðja á lífi, þá má hann einungis ráðstafa þannig fjórðungi eigna sinna, eins og áður var. Ef bæði niðjar og maki skulu erfa saman, mun þessi regla taka einnig til arfhluta makans, því að heimilt er að ráð- stafa helming eigna, ef enginn niðja er á lífi. en maki er lifandi, 20. gr. laganna. Ef nú t. d. foreldrar arfleifanda standa til erfðar eftir hann mað maka hans, þá getur hann ráðstafað 2/4 eigna sinna. Þá eru eftir 2/4, sem skiptast jafnt milli maka og foreldra, og maki fær þá V4 og for- eldrar x/4. Þegar svo stóð á, gat arfleifandi eftir 88. gr. 1. nr. 20/1923 ekki lækkað með erfðaskrá arfhlut maka síns meira en niður í Vs hluta eigna sinna. Maki erfði þá, ef engin erfðaskrá var gerð, 3/6 eigna maka síns, en arfleif- andi hefur þá mátt ráðstafa x/6 þessa hluta, og verða þá eftir 2/6 eða V3 allra eigna makans, sem eftirlifandi maki hans fær. Hlutur maka getur því orðið með þessum hætti sýnu lakari eftir nýju erfðalögunum en hann mátti verða eftir 88. gr. laga nr. 20/1923. Er víst torfundin ástæða til þessa, sérstaklega af því að erfðaréttur maka takmarkast nú af erfðarétti afa og ömmu og barna þeirra, andstætt því, sem áður var. D. Loks rennur arfur í ríkissjóð, ef 1. Arfleifandi á engan lögmæltan erfingja samkvæmt A—C hér að framan og hefur ekki heldur ráðstafað fé
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.