Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Side 21

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Side 21
Nokkur orÖ um erföarétt 13 sínu eftir sinn dag með erfðaskrá, 33. gr. erfðalaganna. Auðvitað er átt við erfðaskrá, sem annað hvort er ekki véfengd eða véfenging er ekki tekin til greina af dóm- stólum. Ljöst er, að fyrirsvarsmaður ríkissjóðs getur vé- fengt erfðaskrá, ef hagsmunir ríkissjóðs heimila það. Ann- ars staðfesta in nýju lög að þessu leyti reglu eldri réttar. 2. Erfingi vitjar ekki arfs áður en 5 ár eru liðin frá því að kunnugt varð um lát arfleifanda, 20. gr. laganna. Vafasamt kann það að vera, hvernig skilja eigi orðin ,,/rá því að kunnugt var um lát arfleifanda“. Á t. d. að telja frest þenna frá því að skiptaráðandi fékk vitneskju um andlátið? Eða frá þeim tíma, er áskorun hefur verið gefin út í Lögbirtingablaði til erfingja um að lýsa erfðakröfu sinni? Eða frá því að erfingja varð kunnugt um andlátið? Virðist svo, að skýrar hefði átt að kveða á um þetta í lög- unum. Svo sýnist, sem ekki verði miðað við vitneskju skiptaráðanda né vitneskju erfingja um andlátið. Erfingi er engu nær um andlátið, þó að skiptaráðanda sé kunnugt um það. Og vera má, að erfingja verði raunverulega seint eða aldrei kunnugt um það, en óheppilegt er, að arfur liggi geymdur1 endalaust, svo að segja. Líklegt sýnist, að frest- inn eigi að miða við venjulega opinbera ráðstöfun til birt- ingar andlátsins, þ. e. auglýsingu í Lögbirtingablaði um andlátið og áskorun til erfingja um að gefa sig fram. Annars verður dómur að skera úr um þetta, ef til kemur. Þegar allt er athugað, verður að telja in nýju erfðalög yfirleitt hafa bætt um margar inar eldri reglur um erfðir, þó að ýmislegt megi að einstökum ákvæðum laganna finna, enda mun sitt sýnast hverjum. Skal ekki farið nánar út í þau atriði. Vegna þess, sem í síðasta kafla greinar þessarar verður sagt, hafa sjálfar erfðareglurnar verið raktar nokk- uð í aðalatriðum, en öðru sleppt, sem líka hefði orðið of langt mál að greina, svo sem arfsafdrátt og um gerð erfða- skrár, sem ekki skiptir sjálfar erfðaheimildirnar. III. Frumvarp til laga um breytingar á erfSalögunum. Þess var getið í fyrsta kafla greinar þessarar, hversu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.