Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1955, Page 11

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1955, Page 11
að um munaði. Þegar íslenzk stjórnmálasaga fyrra helm- ings þessarar aldar verður rituð, hlýtur nafn dr. Ein- ars að bera þar mjög á góma. Að loknu prófi sneri hann sér þegar að stjórnmálum og blaðamennsku. Hann var fyrst kjörinn á þing í Árnes- sýslu 1914 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Var ráðherra 4. maí 1915 til 4. jan. 1917 og þá hinn síðasti, er einn gegndi ráð- herraembætti hér á landi. Litlu síðar hvarf hann af þingi. En árið 1930 var hann kjörinn þingmaður hér í Reykja- vík. Ári síðar var hann skipaður hæstaréttardómari og lét þá af þingmennsku. Eins og kunnugt er, urðu vand- kvæði á myndun þingræðisstjórnar á árinu 1942. Skipaði forsetinn, Sveinn Björnsson, þá utanþingsstjórn 16. des. 1942. undir forsæti dr. Björns Þórðarsonar. Dr. Einar hafði á hendi embætti dóms- og menntamálaráðherra í þeirri stjórn þar til 21. september 1944, er hann tók við hæstaréttardómaraembætti sínu á ný. 1 minningargrein um dr. Einar, er Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra ritaði í Morgunblaðið 6. apríl þ. á., seg- ir m. a.: „Á Alþingi þótti þegar mikið að honum kveða, og er Sigurður Eggerz sagði af sér 1915 vegna ósamþykkis við iionung um staðfestingu stjórnarskrárbreytingar var Ein- ar kvaddur til ráðherradóms. Að vísu var það konungur með ráði vina sinna hér, sem því kalli réði, en Einar reyndist hafa meirihluta á Alþingi, þó að flokksmönnum hans sýndist mjög sitt hvað um valdatöku hans. Er mér í barnsminni, að faðir minn, sem þá vann á Landsbóka- safninu, kom heim að kvöldi eftir þingkosningarnar 1916 og sagðist hafa hitt Einar Arnórsson og hefði Einar sagt, að ólíkt hefðust þeir að, því að hann hefði heyrt eftir pabba, að hann óskaði einskis fremur, en að Einar Arn- órsson félli, en Einar kvaðst una því vel, að faðir minn hefði náð kosningu. Ekki man ég meira af þeim orðaskift- um. En þessa menn greindi ekki á um, að hverju bæri að stefna, heldur hitt, hvernig markinu skyldi náð. Eftir á 5

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.