Tímarit lögfræðinga - 01.01.1962, Blaðsíða 6
því sjaldnast að finna skýr og ótvíræð svör við framan-
greindri spurningu, enda eru þær flestar hverjar fáorð-
ar um milliríkjasamskipti, hafa að jafnaði látið sér nægja
að taka fram, hvaða stjórnvöld væru i fyrirsvari fyrir
rikið út á við. Drlausn þessarar spurningar hefur því
fyrst og fremst hyggzt á stjórnarskrártúlkun í hverju
landi fyrir sig. Við henni verða ekki gefin nein algild
svör, því að stjórnlagaskýring er talsvert breytileg frá
einu landi til annars. Hvert ríki verður að svara þessari
spurningu fyrir sitt leyti. Niðurstaðan hefur orðið sú, að
ýmis ríki hafa tekið i stjórnarskrá sína sérstakt ákvæði
er lýtur að þátttöku þeirra í alþjóðastofnunum. Heimila
þau innan vissra takmarka og með tilteknum skilyrðum
valdaframsal til alþjóðlegra stofnana án stjórnarskrár-
breytinga hverju sinni. Slik ákvæði hafa t. d. verið tekin
upp í stjórnarskrár Danmerkur, Noregs, Vestur-Þýzka-
lands, Frakklands, Italiu, Hollands og ef til vill fleiri
landa. Ákvæði þessi eru nokkuð sitt með hvorum hætti,
en það verður hér eigi rakið.
Hér á landi hefur spurning þessi lítið verið rædd hing
að til. Skiptir hún þó siður en svo minna máli hér en
annars staðar.. Island hefur í æ ríkara mæli tekið þátt
í alþjóðasamvinnu. Það hefur gerzt aðili margvíslegra
alþjóðasamtaka, svo sem Sameinuðu þjóðanna, Atlants-
hafsbandalagsins, Evrópuráðsins og Norðurlandaráðsins,
svo að nokkur dæmi séu nefnd. Líklegt er og, að Islend-
ingar verði áður en langt um liður að gera það upp við
sig, hvort eða hverra tengsla Island eigi að æskja við
Efnahagsbandalagið. Að visu virðast flestir landsmenn
sammála um, að vegna sérstöðu Islands komi full aðild
þess ekki til greina. En þó aðeins sé hugsað til svokall-
aðrar aukaaðildar eða jafnvel annarra lauslegri tengsla
við bandalagið, þarf allt að einu að leysa úr þeirri spurn-
ingu, hvort stjórnarskráin setji þar einhverjar skorður.
Það er því sérstakt tilefni til þess nú, að kryfja þetta
úrlausnarefni til mergjar. En það er skiljanlegt, að at-
4
Tímarit lögfræðinga