Tímarit lögfræðinga - 01.01.1962, Blaðsíða 58
Bækur
Professor Johs. Andenæs: Straffeprosessen i förste
instans. Universitetsforlaget. Oslo/Bergen 1962.
Professor Andenæs er, eins og mörgum hér mun kunn-
ugt, einn liinna helztu refsiréttarfræðinga á Norðurlönd-
um og mikilsvirtur rithöfundur á sviði lögfræði. Hann
kennir refsirétt við háskólann í Osló og jafnframt réttar-
far í sakamálum. Hann hefur nú látið frá sér fara ofan-
greinda bók, og ber að fagna henni. Norsk refsi- og saka-
málalöggjöf er að vísu á ýmsan hátt frábrugðin íslenzkri
löggjöf um þessi efni og bókin einkum ætluð til kennslu
við háskólann í Osló. Engu að síður er hún fengur fyrir
okkur hér. Grundvallarsjónarmið réttarins eru hin sömu
og margt ákvæði líkt eða eins. Þá eru og staðhættir og
lífsviðhorf okkar og Norðmanna að ýmsu lík. Bókin er
okkur því hvorttveggja í senn, skýrt og greinagott yfir-
lit um skipan þessara mála í Noregi, og, að vísu stutt,
en glögg greinargerð um ýmsar grundvallarreglur og
sjónarmið nútíma sakamálaréttarafars á Norðurlöndum
— og reyndar víðar. Þessi bók, ásamt bók Stephan Hur-
witz prófessors: Den Danske Strafferetspleje (Kbh. 1949)
og Karls Olivecrona: Rettegángen i brottmál enligt R. B.
Sth. 1953, er því mjög hæf til þess að skýra fyrir mönn-
um hér, hvernig málum þeim, sem um er fjallað, er nú
háttað á Norðurlöndum.
Professor Stig Jörgensen: Svie og smerte. Universi-
tetsforlaget i Aarhus 1960.
Jörgensen professor er ungur maður, er fyrir skömmu
gerðist prófessor í lögum við Arósaháskóla. Hann hefur,
sem að likum lætur, skrifað talsvert. Árið 1957 kom
t. d. út eftir hann bókin: Erstatning for personskade og
tab af forsörger. Þessa nýju bók má skoða sem viðbót
við hina eldri. Hér er tekin til allitarlegrar meðferðar
56
Tímarit lögfræðinga