Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1962, Side 58

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1962, Side 58
Bækur Professor Johs. Andenæs: Straffeprosessen i förste instans. Universitetsforlaget. Oslo/Bergen 1962. Professor Andenæs er, eins og mörgum hér mun kunn- ugt, einn liinna helztu refsiréttarfræðinga á Norðurlönd- um og mikilsvirtur rithöfundur á sviði lögfræði. Hann kennir refsirétt við háskólann í Osló og jafnframt réttar- far í sakamálum. Hann hefur nú látið frá sér fara ofan- greinda bók, og ber að fagna henni. Norsk refsi- og saka- málalöggjöf er að vísu á ýmsan hátt frábrugðin íslenzkri löggjöf um þessi efni og bókin einkum ætluð til kennslu við háskólann í Osló. Engu að síður er hún fengur fyrir okkur hér. Grundvallarsjónarmið réttarins eru hin sömu og margt ákvæði líkt eða eins. Þá eru og staðhættir og lífsviðhorf okkar og Norðmanna að ýmsu lík. Bókin er okkur því hvorttveggja í senn, skýrt og greinagott yfir- lit um skipan þessara mála í Noregi, og, að vísu stutt, en glögg greinargerð um ýmsar grundvallarreglur og sjónarmið nútíma sakamálaréttarafars á Norðurlöndum — og reyndar víðar. Þessi bók, ásamt bók Stephan Hur- witz prófessors: Den Danske Strafferetspleje (Kbh. 1949) og Karls Olivecrona: Rettegángen i brottmál enligt R. B. Sth. 1953, er því mjög hæf til þess að skýra fyrir mönn- um hér, hvernig málum þeim, sem um er fjallað, er nú háttað á Norðurlöndum. Professor Stig Jörgensen: Svie og smerte. Universi- tetsforlaget i Aarhus 1960. Jörgensen professor er ungur maður, er fyrir skömmu gerðist prófessor í lögum við Arósaháskóla. Hann hefur, sem að likum lætur, skrifað talsvert. Árið 1957 kom t. d. út eftir hann bókin: Erstatning for personskade og tab af forsörger. Þessa nýju bók má skoða sem viðbót við hina eldri. Hér er tekin til allitarlegrar meðferðar 56 Tímarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.