Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 19

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 19
hinu meginatriðinu í samþykktarkröfunum um lögmenn, að Alþingi hefði frumkvæðið um val þeirra, og sýnir þetta bæði hinn ákveðna vilja Margrétar i nafni konungs til að ráða lögmannsskipuninni og tilraun hennar til að skapa festu í landsstjórninni. Á sama hátt lætur hún dróttseta sinn fáum árum síðar skipa Narfa Sveinsson lögmann s. og a., og þótt ekkert sé fram um það tekið, að Narfi hafi verið skipaður ævilangt, fór það svo, að hann var í em- bættinu um 20 ár samfleytt, eftir því sem bezt verður séð. Hrafn Bótólfsson fórst í jarðskriðu árið 13901) og varð þá Þorsteinn Eyjólfsson, tengdafaðir hans, lögmaður. Hann hafði þrisvar áður gegnt því embætti og var nú sennilega a. m. k. á sjötugsaldri. Lögmannsannáll segir: „Tekinn Þorsteinn Eyjólfsson til lögmanns fyrir norðan og vestan á Islandi á Alþingi14,2) en Flateyjarannáll hefur þessi orð: „Skipaður af hirðstjóra á Alþingi með samþykki almúg- ans Þorsteinn Eyjólfsson lögmaður yfir Norðlendinga- og Vestfirðinga .. ,“.3). Vigfús ívarsson hirðstjóri var nýkominn út þegar Hrafn Bótólfsson lézt. Hann er hirðstjórinn, sem Flateyjarannáll getur um, og hann er í embætti sinu allan þann tíma, sem Margrét drottning réði ríkjum. Hér er e. t. v. greinilegast sagt frá hinu einkennilega samráði konungs og Alþingis um skipun lögmanna. Hirð- stjórinn er hinn viðurkenndi umboðsmaður konungs eða ríkisstjóra, sem er nú orðinn æði fjarlægur, dvelst senni- lega lengstum suður i Danmörku. Hann skipar lögmann- inn, en almúginn, þ. e. þingheimur, samþykkir, og hans samþykkis virðist hafa þurft með. Þegar komið er fram á síðari rikisár Eiríks konungs af Pommern, hafa menn hér verið orðnir vanir allmikilli festu í ríkisstjórn, þótt konungarnir hafi færst fjær. Lögmenn G. Storm. ísl. ann., bls. 416. 2) S. st., bls. 284. 3) S. st., bls. 417. Tímarit lögfrœðinga 17

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.