Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 23

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 23
lögmaður að n. og v. á Alþingi. Kjörbréfið er með svo- felldu orðalagi: „... kjörum vér og samþykktum fyrr- nefndir menn (þ. e. hirðstjórinn, lögmaðurinn að s. og a. og nokkrir sýslumenn og lögréttumenn) með öllum al- múganum utan lögréttu og innan ærlegan dandi mann, Teit bónda Þorleifsson, fyrir fullmektugan lögmann norð- an og vestan á Islandi etc . .. því biðjum vér yðra verð- ugustu náð auðmjúklega, herra kóng Kristiern, að hylla og styrkja þenna vorn gerning með yðru náða bréfi*'.1) Hér kemur greinilega í ljós hvernig Alþingi þá hugsar sér að lögmannskjör skuli vera, að það kjósi manninn, en konungsstaðfestingar þurfi siðan fyrir kjörinu. Það þýddi auðvitað, að hið raunverulega veitingarvald var i höndum Alþingis, með því að konungur hafði eflaust sjaldan rök- studdar ástæður til að hafna þeim manni, sem kjörinn var. Vigfús lögmaður Erlendsson virðist hafa látizt erlendis síðla vetrar árið 1521. Lát hans er orðið kunnugt hér á landi 21. maí þ. á.2) A Alþingi á þvi ári er Erlendur Þor- varðsson orðinn lögmaður að sunnan og austan3) og hefur auðvitað ekki verið tóm til þess að leita konungsveitingar fyrir embættinu frá þeim tima er lát Vigfúsar spurSist hingað til lands þangað til Alþingi kom saman. Erlendur er því kjörinn lögmaður sunnan og austan á Alþingi 1521. Sennilegt er, að hann hafi fengið konungsstaðfestingu fyrir embættinu skömmu síðar, þótt ekkert sé um það kunn- ugt. Löngu siðar félck hann slíka staðfestingu, svo sem siðar segir. Jón biskup Arason kom út með vígslu 1525. Þá hafa valdahlutföllin á Norðurlandi snúist honum í vil, og Teitur Þorleifsson hefur orðið að láta í minni pokann þar. Hvort sem Teitur hefur viljugur sagt af sér lögmennsku eða hann hefur verið knúinn til þess, er víst, að Hrafn Brands- H D. I. IX, bls. 102—103. 3) D. I. VIII, bls. 792. 3) D. I. VIII, bls. 816—818. Tímarit lögfræðinga 21

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.