Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 37

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 37
mál niður eða frávisa því. Samkvæmt eldri reglum, sbr. 3. og 4. 1. 108. gr. eml. mátti lcæra synjun dómara um frá- vísun, sbr. m. a. Hrd. XXV-111 og 310, og dómi, er vísaði máli frá, varð aðeins haggað með kæru, sbr. t. d. Hrd. XXV-601. Samkvæmt enn eldri lögum, þ. e. tilsk. 17/5 1690, eins og hún var skýrð, var hins vegar ekki heimilt að áfrýja sérstaklega synjun dómara um frávisun, því að þá var um að ræða atriði, er síðari málsmeðferð valt á. Með hrl. var að verulegu levti horfið að sjónarmiðum tilsk. 1690, og kæruheimildir mjög þrengdar. Það viðhorf, svo og orðalag ákvæðisins, benda eindregið til þess, að skýra beri greint ákvæði b-liðs 21. gr. hrl. þröngt og þá á þann veg, að synjun dómara um frávísun verði ekki kærð. Sú er og skoðun Hæstaréttar, sbr. Hrd. XXXIV-295. Um það má deila, hvort þessi regla er alls kostar heppi- leg. Ef máli er vísað frá héraðsdómi, er oftast opin leið til þess að bæta úr göllum, er til frávísunar leiddu og höfða nýtt mál. Virðist það þá einfaldari, fljótfarnari og kostn- aðarminni leið. Málskot getur þó stundum verið nauðsyn- legt, t. d. ef máli er visað frá sarnkv. 66., 68., 196. gr. 2. 1. o. fl. Er þannig stendur á, virðist kæruheimild bezt hæfa. Því má segja, að kæruheimild eigi rétt á sér um frávísun- ardóma. Henni ber þó að beita hóflega og veita aðilum aðhald, m. a. með þvi að leggja á þá ríflegan málskostnað eða beita vítum eða sektum, ef efni standa til. Skortur á heimild til þess að kæra synjun dómara um frávísun er hins vegar varhugaverð. Að vísu gæti slík heimild orðið til þess að tefja mál, en hins vegar er það almenn réttarfarsregla að skera ber úr um formhlið máls, áður en efni þess er tekið til athugunar, sbr. 108. gr. eml. og 48. gr. hrl. Þessi regla miðar að því, að ekki sé eytt tíma og fyrirhöfn til athugunar á efni mála, er síðar kann að verða vísað frá. Því virðist rétt að heimild sé til kæru úrskurðar, er synjar um frávísun, enda mundi hún sporna við því að mál tefjist vegna þess að tilgangslaus vinna sé unnin. Tímarit lugfrœðinga 35

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.