Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 47

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 47
þegar „ákvörðunum skiptaréttar“. Hér er engin undan- tekning gerð og mátti þá áfrýja sjálfstætt öllum ákvörð- unum skiptaréttar. En aðferðin var önnur en þá tíðkaðist um áfrýjun, sbr. 50. og 52. gr. laga nr. 19/1924. Þótt þessar reglur séu ekki beint felldar úr gildi, er þó ljóst af 21. gr. hrl., að 2. tl. hennar kemur í stað greindra ákvæða laga nr. 19/1924 og fellur þá undir a-liðinn álcvörðun skiptaréttar um það, hvort beiðni um nauðasamninga skuli synjað eða á hana fallizt. Þess ber þó að gæta, að aðili að beiðni um nauðasamninga getur skuldunautur einn verið, en eklci skuldheimtumenn, sbr. 3. og 31. gr. laga nr. 19/1954. I 50. gr. 1. nr. 19/1924 er ákvæði þess efnis, að úrskurði, þar sem fallizt er á beiðni um nauðasamninga, verði ekki áfrýjað. Þá segir og i sömu grein, að úrskurði, þar sem synjað er beiðni, ákveðið að samningatilraun skuli falla niður eða samningi synjað staðfestingar, geti einungis skuldunautur áfrýjað en ekki aðrir. Þessar sérreglur miðast við það sjónarmið, að nauðasamningaleiðin er heimiluð skuldu- naut til hags, enda skuldheimtumanninum opin leið til þess að koma fram gjaldþroti, ef samningar takast ekki. Þvi má ætla, að þessi ákvæði séu enn í gildi og svo að sjálfsögðu að málskot er hverjum heimilt, sem hagsmuna hefur að gæta, með greindum takmörkunum. Ákvæði 51. gr. um þýðingu áfrýjunar halda og auðvitað gildi. b) „Réttmæti kröfu til greiðslu eða eigna i búi og sæti í kröfuflokki“. Þeir úrskurðir, sem hér falla undir, eru úrskurðir samkv. 35. sbr. 38., 40. og 49. gr. skiptalag- anna, sbr. og 35. gr. gjþskl. c) „Hvaða eignir draga skuli undir búið“. Hér mundi oftast vera um að ræða ágreining við þriðja mann, er teldi rétt sinn þvi til fyrirstöðu, að tiltekin eign gengi til búsins. Um skyldu hans til þess að afhenda hlutinn úr- skurðar skiptaréttur ekki, sbr. 35. gr. skl. Um slíkan ágreining fjalla aðrir dómstólar og c-liður á þar þvi ekki við. Hann á ekki heldur við, ef þriðji maður telur sig eiga rétt til eignar úr búinu. Að visu úrskurða skiptaráð- Tímarit lögfræðinga 45

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.