Tímarit lögfræðinga - 01.06.1966, Blaðsíða 57
sinum um samstarf við Lögfræðingafélagið um funda-
höld, og i framhaldi af því var haldinn einn sameiginlegur
fundur félaganna á árinu, eins og rakið er hér að framan.
Félagið sendi fulltrúa, hdl. Loga Guðbrandsson, til setu
á ráðstefnu um umferðaröryggismál, sem haldin var í
Reykjavík i janúar 1966. Þá var félaginu boðin aðild að
samtökunum „Varúð á vegum“, sem stofnuð voru í fram-
haldi af ráðstefnunni. Taldi stjórnin rétt að bíða með
ákvörðun í því efni, enda á valdi félagsfundar að ákveða
þátttöku.
Aðalfundur.
Hinn 19. des. 1966 var haldinn aðalfundur félagsins.
Þar flutti félagsformaður, Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
skýrslu um störf stjórnar og félagsins, og gjaldkeri, Einar
Bjarnason, gerði grein fvrir reikningum og fjárhag þess.
Stjórnarkjör fór þannig: Formaður var endurkjörinn
með samhljóða atkvæðum Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
alþingismaður. Varaformaður var á sama hátt endurkjör-
inn Þórður Björnsson .yfirsakadómari. Meðstjórnendur
voru kosnir: Arnljótur Björnsson hdl., Einar Bjarnason,
ríkisendurskoðandi, Guðmundur Jónsson, borgardómari,
Theodór B. Líndal, prófessor, og Tómas Arnason hrl. Árni
Gunnlaugsson hafði ekki gefið kost á sér til endurkjörs í
félagsstjórn.
.4 fundinum spurðist Bjarni K. Bjarnason, horgardóm-
ari, fyrir um störf og þátttöku fulltrúa félagsins í fulltrúa-
ráði bandalags háskólamanna. Var samþykkt tillaga um
að fresta kosningu á fulltrúum félagsins i nefnt fulltrúa-
ráð.
Aðalfundinum stjórnaði Hákon Guðmundsson yfirborg-
ardómari og sleit honum með þökkum til fráfarandi stjórn-
ar og óskum um farsæld og giftu til handa Lögfræðinga-
félagi íslands.
Árni Gunnlaugsson.
Tímarit lögfræðinga
119