Tímarit lögfræðinga - 01.06.1966, Blaðsíða 56
ari afgreiðslu dómsmála. Benli hann á með sögulegum
dæmum, að þetta vandamál, seinagangur í meðferð mála,
væri ævagamalt hér á landi. Þá vék Þórður að ástæðum
fyrir drætti opinherra mála. Taldi hann, að sumar endur-
Ijætur i löggjöf undanfarin ár hafi ekki verið til þess
fallnar að flýta afgreiðslu mála, t. d. ákæruvaldið hjá
saksóknara og sundurgreining rannsóknarvalds og dóms-
valds.
Næstur ræðumanna var Magnús Thoroddsen, fulltrúi
yfirborgardómara. Kom hann á framfæri þeirri áhendingu
til flýtis i gangi mála, að víxlar yrðu gerðir aðfararhæfir
eins og veðskuldabréf í fasteign, og benti á hinn sívaxandi
fjölda víxilmála við horgardómaraembættið í þessu sam-
bandi.
Dómsmálaráðherra tók aftur til máls, þakkaði ánægju
og gagn, sem hann liefði haft af fundinum og árnaði Lög-
fræðingafélaginu allra heilla og blessunar.
Fundarsókn var um 90 félagar.
Stjórnarfundir.
Félagsstjórnin kom saman til átta funda á árinu. Komu
þar til umræðu og afgreiðslu ýmis mál varðandi félagið,
og skal þeirra helztu hér getið.
Tímarit lögfræðinga var oft til umræðu og þá einkum
nauðsyn sú, að útgáfa þess þyrfti eklci að dragast vegna
vöntunar á efni. Eru lögfræðingar eindregið hvattir til að
styðja útgáfu tímarits síns með þvi að senda þvi efni um
lögfræðileg efni.
Samþykkt var, að Lögfræðingafélagið byði dr. juris
Þórði Eyjólfssyni, fvrrverandi hæstaréttardómara, að gefa
út til heiðurs honum ritgerðir eftir hann um lögfræðileg
efni í tilefni þess, að hann væri hættur störfum sem
hæstaréttardómari. Þórður Eyjólfsson þáði hoðið, og
var ákveðið að gefa út umræddar ritgerðir á 70 ára af-
mæli höfundarins á árinu 1967.
Orator, félag laganema, liafði sérstaklega lýst áhuga
118 Tímcirit lögfræðinga