Tímarit lögfræðinga - 01.06.1966, Blaðsíða 45
Frá Dómarafélagi íslands
Aðalfundur félagsins 1966 var haldinn í Reykjavík dag-
ana 12. til 15. október.
Formaður félagsins, Hákon Guðmundsson, setti fund-
inn og stjórnaði honum. Flutti hann kveðju frá dóms-
málaráðherra, Jóhanni Hafstein, sem boðið hafði verið
að vera við fundarsetningu, en gat ekki komið vegna
veikindaforfalla. Þá bauð hann og velkomna í félagið þá
Benedikt Sigurjónsson hæstaréttardómara, Elías Elíasson
bæjarfógeta og Unnstein Beck borgarfógeta, er skipaðir
höfðu verið i dómaraembætti á liðnu starfsári.
Þá vék formaður að því, að nú þessa dagana væru liðin
25 ár frá stofnun félagsins, en stofnfundur þess hefði
verið haldinn dagana 10.—17. október 1941. Hefði stjórn
félagsins talið rétt og skylt að þess yrði minnzt á verðug-
an hátt og því fengið Jóhann Gunnar Ólafsson til þess að
skrá 25 ára sögu þess og væri ætlunin, að sú ritgerð hirt-
ist í Tímariti lögfræðinga, er höfundur hefði lokið henni.
Mundi því ekki nú fjölyrt um það, sem á daga þess hefði
drifið liðinn aldarfjórðung, en aðeins stuttlega vikið að
nokkrum dráttum i sögu félagsins. Mælti formaður því
næst á þessa leið:
„Þegar til þess er litið, að rekja má rætur sýslumanns-
embættanna til hinna fornu goða, svo sem Hjálmar Vil-
hjálmsson gat um í fróðlegu erindi, sem hann flutti hér
á síðasta aðalfundi, en það hefur að efni til hirzt á prenti
í síðasta hefti Tímarits lögfræðinga, þá var það ekki von-
um fyrr, er islenzkir dómarar hófust handa um að stofna
félagsbundin samtök sín árið 1941. Reyndar voru það þó
ekki alveg fyrstu samtök dómara hér á landi, því árið
1924 efndu nokkrir þeirra til félagsskapar, er nefndist
Valdsmannafélagið eða Sýslumannafélagið. Það varð þó
Tímarit lögfræðinga
107