Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 33
Frá
Laéadeild
Iláskólans
DEILDARFRÉTTÍR
1. NámskeiS í Evrópurétti.
Síðari hluta októbermánaðar var efnt til námskeiðs í Evrópurétti á vegum
lagadeildar. Dagana 17. og 18. október töluðu Þór Vilhjálmsson prófessor
um hugmyndir um samvinnu Evrópuríkjá, Páll Skúlason lögfræðingur um
Efnahagsbandalagið (EBE) og stofnanir þess, Þórir Einarsson dósent í
viðskiptadeild um efnahagslega þýðingu milliríkjaviðskipta og Brynjólfur
Kjartansson hdl. um ákvæði EBE-sáttmálans um efnahagssamvinnu aðild-
arríkjanna. Dagana 22.—26. október leiðbeindi hollenski prófessorinn
H. G. Schermers á námskeiði þessu. Hinn 26. október flutti próf. Schermers
síðan opinberan fyrirlestur um efnið: Legal problems within the EEC.
2. Fyririestrar.
Knud Waaben, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla, hélt tvo fyrirlestra
í október í boði Háskóla islands og lagadeildar. Fyrri fyrirlesturinn var
haldinn 17. október og fjallað um efnið: Nyere udviklingslinier i kriminal-
politikken. Síðari fyrirlesturinn var 19. október og var efni hans: 0kono-
miske forbrydelser.
3. KennaraliS.
Arnljótur Björnsson, settur prófessor, hefur verið skipaður dósent við
lagadeild, en gegnir áfram prófessorsstöðu. Hefur Páll Sigurðsson, cand.
juris, verið settur dósent.
4. Embættispróf í september 1973.
10 stúdentar luku embættisprófi í lögfræði í septembermánuði. Einn þeirra,
Árni Kolbeinsson, hlaut ágætiseinkunn, 2471/2 stig (14.56), og er það í
fyrsta sinn í sögu lagadeildar Háskólans, að embættisprófi er lokið með
ágætiseinkunn. Þessir luku embættisprófi:
Arnar Guðmundsson
Árni Kolbeinsson
Björn Hafsteinsson
Guðmundur Sigurjónsson
Jón Steinar Gunnlaugsson
Ólafur G. Gústafsson
Pétur Gunnlaugsson
Sigurberg Guðjónsson
Skarphéðinn Þórisson
Sævar Lýðsson.
5. Innritun nýstúdenta.
Til náms í lagadeild hafa verið skráðir nú í haust 69 stúdentar.
Gaukur Jörundsson
31