Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 55
að sameiginlegum verkefnum ríkis og sveitarfélaga verði fækkað, eftir því
sem unnt er. Einstök verkefni verði falin þeim aðila, sem eðlilegast er, að
hafi þau með höndum miðað við eðli verkefnis, og þess gætt, að saman
fari hjá sama aðila frumkvæði að framkvæmd, umsjón framkvæmdar og að
sá sami aðili standi að öllu leyti undir kostnaði við framkvæmdina. Lagt er
til, að ríkið hafi eitt með höndum verkefni, sem varða landsmenn alla nokk-
urn veginn jafnt án tillits til búsetu, svo og verkefni, sem fela í sér jöfnun á
aðstöðu einstakra byggðarlaga. Lagt er til, að ríkisvaldinu verði dreift út
um landshlutana, eftir því sem unnt reynist og hentugt þætti. Talið er eðli-
legt, að sveitarfélögin annist þau verkefni, sem fyrst og fremst snerti íbúa
viðkomandi sveitarfélags, og ýmis verkefni er fjallað um, sem eðlilegt væri,
að sveitarfélögin önnuðust og leystu í samvinnu. Talið er sjálfsagt, að stefnt
verði að því réttarstaða allra sveitarfélaga verði hin sama, en nú er tölu-
verður munur á réttarstöðu hreppa og kaupstaða. Þá er talið æskilegt. að
stofnaður verði sérstakur stjórnsýsludómstóll, er skeri úr ágreiningi um
stjórnsýslumálefni milli einstaklinga og sveitarstjórna og sveitarstjórna og
ríkisins. i greinargerðinni er fjallað um fjölmörg verkefni ,,hins opinbera",
aðila framkvæmdarvaldsins, ríkisins og sveitarfélaganna og gerðar tillögur
um framtíðarverkaskiptingu. Magnús E. GuSjónsson
FÉLAG SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA Á ÍSLANDI
Aðalfundur Félags Sameinuðu þjóðanna var haldinn 17. desember 1973.
Þá var Jóhannes Elíasson bankastjóri endurkjörinn formaður. Aðrir í stjórn
eru Baldvin Tryggvason framkvæmdastjóri, Helgi Elíasson fyrrv. fræðslumála-
stjóri, Knútur Hallsson skrifstofustjóri og frú Sigríður J. Magnússon.
Á fundinum fiutti formaður skýrslu stjórnar um athafnir félagsins á liðnu
ári, og verða hér taldir helstu þættir hennar: Dagana 15. og 16. mal var
haldinn í Reykjavík árlegur fundur framkvæmdastjóra SÞ-félaga á öllum
Norðurlöndunum ásamt fulltrúum upplýsingaskrifstofu SÞ í Kaupmannahöfn.
Fundurinn reyndist hinn gagnlegasti. Hann sátu 11 erlendir gestir auk stjórn-
ar íslenska félagsins, og var þar rætt um starfsháttu og árangur félaganna
I ýmsum greinum. Hinn 24. október efndi félagið til fyrirlestrahalds um SÞ
í 18 gagnfræða- og menntaskólum í Reykjavík og nágrenni. Félagið boðaði
til almenns fundar 10. desember í tilefni 25 ára afmælis mannréttindayfir-
lýsingar SÞ, og voru þar framsögumenn Sigurgeir Sigurjónsson hrl. og Þór
Vilhjálmsson prófessor. Enn fremur flutti Einar Ágústsson utanríkisráðherra
ávarp í útvarp þennan dag að tilstuðlan félagsins. I upphafi árs tók félagið
að sér og hefur síðan annast útsendingu fréttabréfs upplýsingaskrifstofu
SÞ í Kaupmannahöfn, en hún leggur til efnið, og Eiður Guðnason fréttamaður
velur úr því og þýðir það. Á árinu komu út 11 bréf í rúmlega eitt hundrað
eintökum hvert. i janúar var auglýst námskeið, sem SÞ halda árlega að sum-
arlagi, annað fyrir stúdenta í New York, hitt fyrir kandidata í Genf. Þorsteinn
Jónsson laganemi sótti fyrrnefnda námskeiðið.
Tilgangur félagsins skv. lögum þess er kynning á og stuðningur við hug-
sjónir og starfsemi SÞ og samræming starfa þeirra félaga, sem hafa svipuð
53