Tímarit lögfræðinga - 01.12.1973, Blaðsíða 42
um, er innheimta þinggjalda og annarra opinberra gjalda. Á því sviði hefur
orðið veruleg breyting til hins lakara af völdum eldgossins. Áður er að því
vikið, að bæjarbúar eru víða dreifðir um landið, og skapar það allmikla
erfiðleika við innheimtuna. Hitt er þó enn verra, að gjaldgeta mikils fjölda
þeirra, sem opinber gjöld eiga að greiða, hefur stórlega minnkað eða jafnvel
þorrið með öllu. Flestir urðu fyrir einhverju eignatjóni, sumir miklu, aðrir
minna. Og gosið hafði einnig í för með sér verulega tekjurýrnun fyrir mikinn
meiri hluta bæjarbúa og í sumum tilfellum varanlega. Margir áttu þar af leið-
andi við mikla fjárhagserfiðleika að stríða. Meðan svo stóð á, gat ekki talizt
tilhlýðilegt að ganga hart eftir greiðslum. Innheimta hefur líka gengið treg-
lega. Nokkuð hefur innheimtan glæðst upp á síðkastið, en naumast er þess
að vænta, að hún komist í gott horf fyrr en eftir talsverðan tíma. Hæstu gjald-
endur, samkvæmt nýútkominni skattskrá, eru fyrirtæki sem ætia að starfa
áfram í Eyjum, en hafa ekki enn byrjað atvinnurekstur. Af þeirra hálfu hefur
því verið haldið fram, að greiðslu gætu þau ekki innt af hendi fyrr en þau
hæfu rekstur að nýju.
FreymóSur Þorsteinsson
EITTHVAÐ FYRIR OKKUR?
Birtar hafa verið í Englandi nýjar reglur um enska héraðsdómstóla, County
Courts. Eru það dómstólar í einkamálum, sem aðeins hafa heimild til að
fara með tiltekna málafiokka. Mega kröfur ekki fara fram yfir tiltekna fjárhæð,
en hún er mismunandi eftir málaflokkum. Breytingarnar eiga að gefa fólki
kost á ódýrari, óformlegri, einfaldari og fljótlegri meðferð mála, sem varða
lágar upphæðir. Sérstaklega eiga reglurnar að ná til mála varðandi vörur og
þjónustu, neytendamála. Reglurnar gengu í gildi 1. október s.l.
Nýmælið, sem í þessum ensku reglum felst, er heimild fyrir ritara héraðs-
dómstólsins til að leggja í gerð lögskipaðs gerðardóms þau mál, sem snúast
um lægri fjárhæð en 75 sterlingspund. Ritarinn er yfirmaður skrifstofuliðs
dómstólsins og fer að auki með minni háttar mál, t. d. útivistarmál eða mál,
sem ekki ná £ 75. Með leyfi dómara og samþykki aðila getur hann farið með
önnur mál. Gerðardómsmeðferðina má hafa, þótt annar aðila sé andvígur því,
en samþykki beggja aðila þarf til, ef krafan er hærri en £ 75. Ritarinn mun
venjulega sjálfur fara með þessi mál, en hann getur einnig vísað þeim til
dómara í réttinum. Ef aðilar verða ásáttir um það, getur maður utan réttarins
verið gerðarmaður. Meðferðin fyrir hinum lögskipaða gerðardómi á að fara
fram fyrir luktum dyrum, aðilar mega leggja málið fyrir á þann hátt, sem þeir
kjósa, venjulega verður ekki krafist eins ríkra sannana og í venjulegu máli,
og meðferðin verður ekki jafnhátíðleg og venjulega í enskum dómsölum, en
fer eftir eðli málsins. Aðilar eru ekki hvattir til að hafa lögmenn sér til aðstoð-
ar, en þó er það heimilt. Málskostnaður verður venjulega ekki úrskurðaður,
annar en endurgjald kostnaðar við útgáfu kæru eða stefnu. Þó má víkja frá
þessu. Þar sem aðilar verða oftast að greida þóknun til lögmanns síns, þó að
þeir vinni mál, er hér beinlínis stefnt að því að sporna gegn afskiptum lög-
manna. Leyfilegt verður að njóta aðstoðar ættingja og vina við flutning
40